# Arnar Þór Gíslason ![[Fólk - Arnar Þór Gíslason.jpg]] Trommur og slagverk. Addi. Addi lemur trommurnar eins og þrjátíu tonna trukkur – aldrei afsláttur. Við byrjuðum að spila saman 2006 og höfum ekki sleppt úr ári síðan. Virkari mann þekki ég ekki. Fyrstur á fætur, síðastur í háttinn, alltaf með allt á hreinu – eins og hann sofi aldrei. Yndislegur, fyndinn, traustur og umfram allt geggjaður trommari. Þvílík gæfa að hafa kynnst honum. Bestur. - **Trommur** á: - Mugiboogie (2007), - Haglél (2011) og - Ítrekun (2009, live). - Á Enjoy! (2016) í - Hangover og - Lazing on. - **Slagverk** í Sólin Er Komin á É Dúdda Mía (2023) - **Mugiboogie-bandið** — frá 2006, með [[Guðni Þórarinn Finnsson]], [[Davíð Þór Jónsson]] og [[Pétur Ben]] - **Pollapönk** — „bleiki trommarinn". Eurovision 2014 með Enga fordóma - **Dr. Spock**, **Ensími** (frá 2003), **Bang Gang** (frá 2014), **Stolía** (frá 1995) - **Trommari fyrir** [[Jónas Sig]], Láru Rúnars, Írafár og fleiri - **Hljóðfærahúsið** — framkvæmdastjóri og einn eigenda **Hlusta / listen:** - [Pollapönk á Spotify](https://open.spotify.com/artist/2b78ylfm29R5xM8IAMGVRR) - [Dr. Spock á Spotify](https://open.spotify.com/artist/1ZyOzjjtxHkAfLA2xHKMxy) - [Ensími á Spotify](https://open.spotify.com/artist/7dW90Eydo7kKjxWvrETmYB) - [Viðtal: Snæbjörn talar við fólk #87](https://open.spotify.com/episode/79KFEFTzFEU1ogYeaQ4fPf) · [Ísmús](https://www.ismus.is/einstaklingar/1008631)