# KK ![[Fólk - KK.jpeg]] *KK og ég* %% Mynd frá Mugison, 14. okt 2026. EKKI kroppa — Mugison vill myndir af sér með fólkinu. %% Kristján Kristjánsson. Söngvari, gítarleikari og lagahöfundur — blús, þjóðlagatónlist og rótarokk. - **Með Mugison** - Báðir meðlimir í Blúskompaní með Magga Eiríks frá 2013 - Fóru fyrsta hringinn saman í Covid-hléinu 2020 og hafa komið saman við ýmis tækifæri síðan - Jólatónleikar KK, Mugison og [[Jón Jónsson]] - fastur liður í desember - Vestfjarðatúr í október 2026 - **Lögin tvö 2026** — [Lífið er](https://open.spotify.com/track/6fPC6S2NoCC0lyzkpN7lMK) og [Eitt lítið hrós](https://open.spotify.com/track/4GUoY9vgb7mDHRJnlTTjJm), tekin upp í Nashville með [[Jón Jónsson|Jóni]], [[Þorleifur Gaukur Davíðsson|Þorleifi Gauki]] og Mugison - **Áhrifavaldur** — Mugison nefnir hann í pistlinum um [[Haglél (album)|Haglél]] (2011) - **Fæddur 1956 í Minnesota**, íslenskir foreldrar, kom heim til Íslands um tíu ára aldur. Verður sjötugur 2026 - **Nám í Svíþjóð** — Fridhems 1979–81, síðar Piteå og Malmö, útskrifaðist sem tónlistarkennari 1990. Spilaði víða um Evrópu 1985–1990 og kom þá heim - **Blues Concept** — blússveit sem hann stofnaði með sænskum félögum, EP 1985 - **KK Band** — hljómsveitin hans á tíunda áratugnum - **Sólóplötur** — átta talsins 1991–2008, m.a. *Lucky One* (1991), *Gleðifólkið* (1995), *Heimaland* (1997) og *Svona eru menn* (2008) - **KK og Magnús Eiríksson** — átta útgáfur 1996–2013, m.a. *Úti á sjó* (2013) - **KK og Ellen** — jólaplötur og árlegir jólatónleikar með Ellen Kristjánsdóttur systur sinni - **Tvenn Íslensku tónlistarverðlaunin** - **Á reki með KK** — Langabesti útvarpsþátturinn á RÚV **Hlusta / listen:** - [KK á Spotify](https://open.spotify.com/artist/3rUSk3kcpl4Nseu1DqFNpJ) · [kk.is](https://kk.is) · [Facebook](https://www.facebook.com/kristjan.kristjansson.54/) %% Vinnunótur 14. okt 2026: - Heimildir: kk.is (eigin vefur), is.wikipedia.org/wiki/Kristján_Kristjánsson_(f._1956), tix.is viðburðarsíða jólatónleikanna, Spotify. - Fæðingardagur vísvitandi ekki birtur — bara ártal, eins og á öðrum Fólk-síðum. - Mugison bætti sjálfur við Blúskompaní, Covid-hringnum og Vestfjarðatúrnum 14. okt. Mynd staðfest: KK til hægri, Mugison til vinstri. - Pistil frá Mugison vantar — KK á skilið sögu, ekki bara upptalningu. %%