# Smá sumaruppgjör – brúðkaup, nýtt heimili og nýtt lag
*3. október 2025 · póstlistabréf nr. 1*
([klikkaðu hér](https://0cd21327.sibforms.com/serve/MUIFAAH2QonpZQ48zXHF4DZlSw7tfdCh2Yn7Abw35VOpmVnB34Zll0VBz_RPJES6OxBjHbVxYLoABj0dmO98-MQk1wLlt9Bk5TyC9TB8EnwQPapmZreacsJZwcsDULHQtmFQ5XJaflCG7i81JmIVRfoseqOYRYyP-hblCaur_3aBfW7a3uGvEtblKowZYpYOICetVm_s6xxyoFN4) ef þú vilt vera á póstlistanum og fá bréf 3–6 sinnum á ári)
*English: [[Blog/2025-10-03 A Little Summer Wrap-up|A Little Summer Wrap-up]]*
![[myndir/Fréttir/2025-10-03 Sumaruppgjör 0 - Til lífsins í ást.jpg]]
## Kofinn í Mosó
Snemma í Kóvidinu – í 5 manna samkomutakmörkunum – bjuggum við [[Rúna Esradóttir|Rúna]] til skrítinn leik: „Ef þú þyrftir að flytja, hvar myndir þú vilja búa fyrir sunnan?“ Við sátum í sófanum og rúntuðum um Google Maps. Þegar við lentum í Helgafellsgötu í Mosó vorum við sammála um að þetta væri hinn fullkomni staður fyrir okkur — sveit í borg.
Nokkrum árum seinna var ég í Sundlauginni hjá Sigur Rós að taka upp. Á meðan ég beið eftir tónlistarmanni kíkti ég á fasteignir á visir.is. Þar sá ég opið hús á Helgafellsgötu og skellti mér strax. Þá mundi ég eftir leiknum okkar.
Ég varð ástfanginn af húsinu, hringdi í Rúnu og sagðist vilja bjóða í það. Hún treysti mér 100% og bað um að ég sendi henni mynd. Ég SMS-aði henni þessari:
![[myndir/Fréttir/2025-10-03 Sumaruppgjör 1 - Kofinn í Mosó.jpg]]
## Aldrei fór ég! – fór samt suður!
Við fengum húsið og höfum verið að gera það upp á hraða snigilsins í þrjú ár: nýtt þak, gluggar, einangrun, og vinnuaðstaða fyrir mig. Í sumar fluttum við loksins í Mosó með yngri stráknum okkar, Eldari.
Dýri, sá eldri, er áfram á Ísafirði hjá Afa Mugga og í menntaskólanum.
Árið 2002 fór ég vestur á Ísafjörð til að klára BA-ritgerð en fann Rúnu í leiðinni. Tveir mánuðir urðu að rúmum 20 árum. Í sumar sannfærði ég hana loksins um að giftast mér – í bakgarðinum okkar. Lítil veisla með fjölskyldunni, karókí, geggjaður matur og hoppubelgur.
![[myndir/Fréttir/2025-10-03 Sumaruppgjör 2 - Brúðkaup og hoppubelgur.jpg]]
## Sumarið leið hratt
Ég spilaði 40 tónleika í Hljómskálanum, þónokkrar bæjarhátíðir, festivöl, tvenna tónleika með [[KK]] og slatta af afmælum, giftingum, jarðarförum og partýum. Svo mikill lúxus að vera hérna í bænum og geta hoppað í allskonar sprell og svo bara kominn heim eftir 20 mínútur – en ekki 6 klukkustundir :-)
Hér er ég í spa-fíling á Húsavík síðasta laugardag – gekk á vatni, ógleymanlegt.
![[myndir/Fréttir/2025-10-03 Sumaruppgjör 3 - Húsavík.jpg]]
## Nýtt lag – Til lífsins í ást
Ég var að gefa út lagið [[2025 Til lífsins í ást|Til lífsins í ást]] í tveimur útgáfum – ein í hillbilly-stemningu. Smá hluti af laginu var tekinn upp í Nashville með Neithaniel, [[KK]] og [[Jón Jónsson|Jóni Jónssyni]], og svo klárað hér heima í Skúrnum með [[Ómar Guðjónsson|Ómari Guðjóns]] á pedalsteel, [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgi Steini]] á kontrabassa og [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer Rodriguez]] á trommur.
Og svo gerðum við [[Sinfóníuhljómsveit Íslands]] saman eina útgáfu, útsett af [[Þórður Magnússon|Þórði Magnússyni]]. Smá upphitun fyrir tónleika sem verða í nóvember.
> [!note]- Plögg – eins og það stóð í bréfinu
> **Hljómskálinn** – Ég hef spilað 40 tónleika í þessu fallega húsi í allt sumar – hálfgerðir stofutónleikar, lítið en kósý. 60 mínútur, rómantísk stemming við tjörnina. Var að bæta við örfáum dögum í október.
>
> **Ég og Sinfó** – Þetta er eitthvað sem maður fær líklega bara að gera einu sinni á ævinni. Mæli heilshugar með að þú komir.
%% Úr póstlistabréfi (Brevo) 3. okt 2025. Upprunalega bréfið: myndir/Fréttir/…(póstlistabréf).html. Sleppt: kveðjan + „þú færð þetta bréf af því…“, afskráningarhlekkur, miðahlekkir (dauðir). „Neithaniel“ – staðfesta nafn. %%