# Endurfæðing og Tímavél
*3. nóvember 2025 · póstlistabréf nr. 2*
([klikkaðu hér](https://0cd21327.sibforms.com/serve/MUIFAAH2QonpZQ48zXHF4DZlSw7tfdCh2Yn7Abw35VOpmVnB34Zll0VBz_RPJES6OxBjHbVxYLoABj0dmO98-MQk1wLlt9Bk5TyC9TB8EnwQPapmZreacsJZwcsDULHQtmFQ5XJaflCG7i81JmIVRfoseqOYRYyP-hblCaur_3aBfW7a3uGvEtblKowZYpYOICetVm_s6xxyoFN4) ef þú vilt vera á póstlistanum og fá bréf 3–6 sinnum á ári)
*English: [[Blog/2025-11-03 Rebirth and a Time Machine|Rebirth and a Time Machine]]*
![[myndir/Fréttir/2025-11-03 Endurfæðing 0 - Haus.jpg]]
## Úr Breiðholtinu og út í Hrísey
Ég var fyrir norðan í síðustu viku að fagna 100 ára afmæli Framhaldsskólans á Laugum í Reykjadal. Ég var þar í tvö ár 1992–1994 — í 10. bekk og fyrsta árið í framhaldsskóla. Þegar ég labbaði um svæðið var eins og ég færi í tímavél; það rifjaðist upp svo margt sem ég var búinn að gleyma.
Þegar ég var að klára níunda bekk í Hólabrekkuskóla í Breiðholtinu sögðu mamma og pabbi mér að við værum að fara flytja norður — út í Hrísey. Pabbi hafði unnið þar í nokkur ár og flogið á milli, en nú áttum við að koma til hans svo hann þyrfti ekki að ferðast svona mikið. Ég sagði þeim að ég væri frekar til í að drepa mig en að fara frá vinum mínum í Breiðholtinu.
Að lokum náðum við samkomulagi: við skyldum prófa þetta. Hrísey iðaði af lífi, fullt af æðislegum krökkum á mínum aldri og mikið af skrítnu og skemmtilegu fólki á eyjunni. Fljótlega var ég kominn á Gíró-frystirinn og vann frá morgni langt fram á kvöld. Þá fóru peningar að rigna inn á bankabókina — ég hef hvorki fyrr né síðar verið svona ríkur.
![[myndir/Fréttir/2025-11-03 Endurfæðing 1 - 14 ára.jpg]]
*14 ára Mugison*
## Endurfæðing
Fram að þessu hafði ég verið mikill íþróttastrákur, æft sund flesta daga vikunnar og spriklað með vinum mínum eftir skóla. En þegar enginn sá, þá skrifaði ég stundum nokkur orð á blað og horfði á þau þangað til orðin fengu nýja merkingu — svona eins og að snúa sér hratt í hringi og stoppa snöggt, bara til að njóta þess að vera ringlaður.
Í frystihúsinu vann líka eitt skáld frá Skagafirði, [[Kjartan Hallur|Kjartan H. Grét]]. Hann sat oft með bók eða var að krota eitthvað í pásum, og þegar við vorum að vinna og spjalla fattaði ég að hann elskaði líka þegar orð láta mann svima af undrun. Nokkra daga í kjölfarið gat ég ekki hætt að spyrja sjálfan mig:
Getur verið að ég sé listamaður?
Hvernig kemst ég að því?
Er þetta eins og ástin eða kynhvötin?
Eða er þetta vöðvi sem þarf að æfa, eins og í sundi?
Kannski er þetta bara sjúkdómur sem ég hef fengið af því að horfa svona stíft á orðin. Er til lækning?
Það var bara ein leið í boði — að prófa. En ég vissi að ég þyrfti hjálp. Eitt kvöldið rölti ég til Kjartans og sagði honum að mig langaði að hætta að vera íþróttastrákur og prófa að vera listamaður. Hvort hann gæti leiðbeint mér.
Hann tók vel í þetta og sagði mér að fara á bókasafnið og velja mér bók, og svo skyldum við spjalla um hana. Ég valdi Heimsljós eftir Halldór Laxness. Ég hafði aldrei klárað bók áður, en sú bók át mig með húð og hári. Þarna var aumingi eins og ég sem lifði fyrir þessa tilfinningu að láta sig svima af undrun.
![[myndir/Fréttir/2025-11-03 Endurfæðing 2 - Heimsljós.jpg|360]]
## Laugar
Ég hætti allri íþróttaiðkun og reyndi eins og ég gat að læra undirstöðuatriði listamannsins hjá Kjartani þetta sumar. Mikilvægast er að elska leitina — að leita að hugmyndum eins og þær séu týndar og þurfi hjálp til að komast inn í heiminn.
Um haustið fór ég svo á Laugar, algjörlega endurfæddur: farinn úr jogginggallanum og í mokkakápu. Í staðinn fyrir sundið safnaði ég síðu hári og lærði að reykja — allt í þágu listarinnar!
![[myndir/Fréttir/2025-11-03 Endurfæðing 3 - Laugar.jpg|348]]
Á Laugum fann ég svo mína hillu — að vera poppari. Þá gat ég blandað saman svo mörgum listformum: tónlist, skáldskap, myndlist, leiklist, gríni og sprelli. Fullkomin blanda fyrir mig.
Núna, 30 árum seinna, hitti ég sjálfan mig í nokkrum unglingum sem eru í skólanum í dag — svo hugmyndarík, fyndin og skemmtileg, svo óttalaus gagnvart heiminum. Ég keyrði í burtu með hjartað fullt af hlýju og hlaðinn innblæstri.
> [!note]- Plögg – eins og það stóð í bréfinu
> **Ég og [[Sinfóníuhljómsveit Íslands|Sinfó]]** – Aðeins í þetta eina sinn með stærstu hljómsveit landsins. Mæli heilshugar með að þú komir.
%% Úr póstlistabréfi (Brevo) 3. nóv 2025. Sendingin sjálf er ekki til í Gmail — textinn tekinn úr svari sem vitnaði í allt bréfið (svarið sjálft ekki notað). Heimild: myndir/Fréttir/2025-11-03 … (póstlistabréf, texti úr svari).txt. Sleppt: kveðjan + „þú færð þetta bréf…“, afskráning, miðahlekkur (dauður). Kjartan H. Grét = [[Kjartan Hallur]] (Mugison 21. okt), hlekkjaður. %%