# Jólaþeytivindan og Saltbarnið
*5. desember 2025 · póstlistabréf nr. 3*
([klikkaðu hér](https://0cd21327.sibforms.com/serve/MUIFAAH2QonpZQ48zXHF4DZlSw7tfdCh2Yn7Abw35VOpmVnB34Zll0VBz_RPJES6OxBjHbVxYLoABj0dmO98-MQk1wLlt9Bk5TyC9TB8EnwQPapmZreacsJZwcsDULHQtmFQ5XJaflCG7i81JmIVRfoseqOYRYyP-hblCaur_3aBfW7a3uGvEtblKowZYpYOICetVm_s6xxyoFN4) ef þú vilt vera á póstlistanum og fá bréf 3–6 sinnum á ári)
*English: [[Blog/2025-12-05 The Christmas Whirlwind and the Salt Child|The Christmas Whirlwind and the Salt Child]]*
![[myndir/Fréttir/2025-12-05 Jólaþeytivindan 0 - Snjóskegg.jpg]]
## Jólaþeytivindan
Ég elska jólin en þau hafa stundum verið brjáluð á okkar heimili, sérstaklega þegar ég hef verið að fylgja eftir nýrri músík. Þá er ég algjör þeytivinda – út um allt, margir boltar á lofti og allt á síðustu stundu.
![[myndir/Fréttir/2025-12-05 Jólaþeytivindan 1 - Hestur.jpg]]
## Jólarússíbani
Árið 2007, eftir útgáfu [[Mugiboogie (album)|Mugiboogie]] og tónleikaferðalag, var ég á endalausum þeytingi að selja geisladiska. Á Þorláksmessu fór [[Rúna Esradóttir|Rúna]] vestur með Eldar. Ég fékk að standa fyrir utan búð á Laugavegi í skítkulda og snjókomu með Dýra (tveggja ára), mömmu og systrum mínum til að selja diska og gefa heitt kakó. Stemningin var geggjuð!
Á **jóladag** fórum við Dýri á flugvöllinn til að fljúga vestur til Rúnu og Eldars, en veðrið var brjálað. Flugmaðurinn tók aukabensín og við flugum af stað. Við hringsóluðum í klukkutíma í Ísafjarðardjúpi. Vélin hoppaði og skoppaði eins og flugmaðurinn væri að æfa skrautskrift. Ég sagði Dýra að þetta væri bara **„jólarússíbani!“** Við fögnuðum hverri dýfu.
Að sjálfsögðu var snúið við og við lentum í Reykjavík í hádeginu. Nú var komið brjálað veður um allt land. Við fengum far og lögðum af stað akandi vestur.
Við vorum hálfnaðir upp á Steingrímsfjarðarheiði þegar klukkan var sex og messan byrjaði á Rás 1. Við borðuðum **roastbeef-samloku** og kókamjólk í bílnum á meðan við hlustuðum á prestinn. Rétt fyrir miðnætti renndum við inn í Súðavík. Þar biðu Rúna og Eldar með allt tilbúið: jólatréð, húsið ilmandi og maturinn geggjaður. Súðavíkurhlíðin lokaði vegna snjóflóða um nóttina. Það var svo yndislegt að komast heim í faðm fjölskyldunnar og loksins geta slakað á með Rúnu og litlu dúddunum tveimur.
![[myndir/Fréttir/2025-12-05 Jólaþeytivindan 2 - Rúna og strákarnir.jpg]]
## Saltbarnið
Nokkrum dögum síðar opnaði Vegagerðin Súðavíkurhlíðina í smástund svo fólk gæti verslað fyrir áramótin – veðurguðirnir vildu greinilega ekki fara í jólafrí. Af einhverjum ástæðum fór ég of seint af stað til Ísafjarðar, fyllti bílinn af hátíðarmat, en þegar ég sneri til baka var greinilega hætt að ryðja og veðrið orðið bandbrjálað.
Ég var á gömlum Toyota Corolla, síminn batterílaus, skyggni ekkert.
Ég kveikti á útvarpinu og heyri að Óli Palli er með þátt um mig og mína músík. Eftir tíu mínútna keyrslu, kominn út á Arnarnesið, missir útvarpið samband og það kemur bara lágt suð. Ég hækka útvarpið í botn en heyri bara lágt suð og brak. Ég var skíthræddur og hugsaði: „Ekki fara fram af brúnni! Hvar er næsta stika?“
Þegar ég kom á staðinn á Súðavíkurhlíðinni þar sem flest snjóflóð falla var hver einasti vöðvi í líkamanum orðinn spenntur. Hausinn límdur við framrúðuna að leita að stiku – algjör terror. Þá dettur útvarpið allt í einu inn á hæsta styrk og þar er barn að hvísla: **„She killed me! Took me down to the sea and killed me.“** Svo dettur það út aftur. Var Dauðinn sjálfur að senda mér skilaboð?
Óli Palli var þá að spila lag eftir mig sem heitir [[10 - Salt|Salt]], þar sem þessi hvíslandi rödd kemur fyrir. Ég hugsaði: „Þvílík örlög! Satan sjálfur að senda manni tilkynningu á miðri hlíð og auðvitað notar hann mitt eigið lag.“ Ég hló aðeins og hugsaði: „Ef það á að drepa mann með þessum hætti, þá get ég alveg eins gefið aðeins í og tekið sénsinn.“
Á einhvern undraverðan hátt komst ég inn í Súðavík með áramótasteikina. Gekk frá matnum og lagðist svo í sófann á meðan strákarnir horfðu á *Toy Story*. Svo fórum við út í snjóinn að leika. Lífið.
![[myndir/Fréttir/2025-12-05 Jólaþeytivindan 3 - Rör.jpg]]
Ég sakna Vestfjarða mjög mikið á þessum árstíma; fjöllin eru svo tignarleg, snjór út um allt og fólkið þjappar sér saman og maður finnur hlýju og húmor í þorpunum. Nú höldum við jólin í fyrsta sinn í litla jólahúsinu okkar í Mosó. Við ætlum að fá okkur jólasamfestinga og hafa það súper kósý – fella tré úr garðinum okkar og hlaða á það jólaseríum og skrauti.
Vona innilega að jólin verði yndisleg hjá ykkur öllum.
**Gleðileg jól elsku vinir!**
> [!note]- Plögg – eins og það stóð í bréfinu
> **Ég, [[KK]], [[Jón Jónsson]] og [[Þorleifur Gaukur Davíðsson|Þorleifur Gaukur]]** – í Reykjavík, Mosó, Selfossi, Akranesi og Akureyri. Sprellum og spilum bestu lögin okkar.
%% Úr póstlistabréfi (Brevo) 5. des 2025. Upprunalega bréfið: myndir/Fréttir/…(póstlistabréf).html. Sleppt: kveðjan + „þú færð þetta bréf…“, afskráning, miðahlekkur (dauður). Bréf nr. 2 („Endurfæðing og Tímavél“, nóv 2025) fannst ekki í Gmail. %%