# Hámarks Árangur og Prump í Krukku
*10. febrúar 2026 · póstlistabréf nr. 4*
([klikkaðu hér](https://0cd21327.sibforms.com/serve/MUIFAAH2QonpZQ48zXHF4DZlSw7tfdCh2Yn7Abw35VOpmVnB34Zll0VBz_RPJES6OxBjHbVxYLoABj0dmO98-MQk1wLlt9Bk5TyC9TB8EnwQPapmZreacsJZwcsDULHQtmFQ5XJaflCG7i81JmIVRfoseqOYRYyP-hblCaur_3aBfW7a3uGvEtblKowZYpYOICetVm_s6xxyoFN4) ef þú vilt vera á póstlistanum og fá bréf 3–6 sinnum á ári)
*English: [[Blog/2026-02-10 Maximum Achievement and a Fart in a Jar|Maximum Achievement and a Fart in a Jar]]*
![[myndir/Fréttir/2026-02-10 Hámarks Árangur 0 - Á sviði.jpg]]
## Vesen
„Stundum er svo mikið að gera að maður getur ekki gert neitt“ á Geirmundur Sveiflukóngur Valtýsson að hafa sagt. Janúar kom og fór og ég náði hreinlega ekki að skrifa til ykkar. Ég festist í bókhaldi, svaraði uppsöfnuðum tölvupóstum, samdi, spilaði og týndist í allskonar veseni.
![[myndir/Fréttir/2026-02-10 Hámarks Árangur 1 - Grænn hattur.jpg]]
## Hámarks Árangur
Þegar ég var um tvítugt las ég bókina Hámarks árangur eftir Brian Tracy. Hún kennir manni að setja sér markmið, trúa á þau — og þá raungerist allt. Ég fylltist innblæstri og skrifaði niður:
- Klára plötu
- Finna útgefanda
- Túra um heiminn
- Breyta þessu áhugamáli í atvinnu
Ég sá þetta allt svo skýrt fyrir mér og skildi þetta þannig að ég þyrfti bara að „klára plötu“ — svo myndi heimurinn sjá um rest.
Ég fór í tveggja ára nám í hljóðupptökum í London til að tækla vankunnáttu mína og gerði fyrstu plötuna meðfram náminu. Þegar henni var lokið fannst mér ég hafa staðið við minn hluta samningsins. Nú var röðin komin að heiminum.
![[myndir/Fréttir/2026-02-10 Hámarks Árangur 2 - Graffití.jpg]]
## Prump í Krukku
Ég keypti frímerki, umslög og tíu geisladiska til að senda á uppáhalds útgáfufyrirtækin mín í Bretlandi í von um að þau myndu slást um að fá mig. En fyrst brenndi ég disk fyrir uppáhalds tónlistarmanninn minn á þeim tíma — Matthew Herbert. Ég skrifaði honum langt ástarbréf og lét diskinn fylgja með. Svo hófst ég handa við að föndra fyrir plötuútgáfurnar.
Þegar ég var að brenna allra síðasta diskinn kom upp villa í tölvunni og hann eyðilagðist. Hann átti að fara til Twisted Nerve í Manchester. Ég sat svekktur, en leit þá yfir í eldhúsið og sá mæjóneskrukku sem ég var nýbúinn að vaska upp. Ég fékk hugmynd. Ég átti jú auka umslag og frímerki — ég gæti allt eins hent í einn brandara.
Ég sendi þeim krukkuna og lítið bréf:
> „Ég ætlaði að senda ykkur nýju plötuna mína en diskurinn eyðilagðist og ég á ekki pening fyrir nýjum fyrr en í næsta mánuði. En ég á umslag og frímerki og ákvað að senda ykkur þessa krukku sem ég prumpaði í. Ef ykkur líkar lyktin, þá get ég sent ykkur tónlistina í næsta mánuði.“
Svo fór ég á pósthúsið með tíu umslög og var þess fullviss að útgáfurnar myndu slást um mig.
Vika leið. Ekkert gerðist. Svo barst mér póstur frá Twisted Nerve í Manchester. Þeir sögðust vera svo hrifnir af prumpinu að sama hvað ég myndi senda þeim þá færi það á safnplötu sem þeir voru með í smíðum. Það lag kom út en ég held að þeir hafi verið hrifnari af prumpinu en laginu þar sem ég heyrði aldrei aftur í þeim eftir þetta. Hin fyrirtækin átta svöruðu aldrei.
Matthew Herbert svaraði hins vegar ástarbréfinu. Hann bauð mér í mat og við urðum vinir.
![[myndir/Lonely Mountain umslag.jpg|320]]
*[[Lonely Mountain (album)|Lonely Mountain]] (2003) – platan sem fór í umslögin*
Þarna sat ég, rúmlega tvítugur, og fannst árangurskenningar Brian Tracy hafa svikið mig. Ég hafði gert allt „rétt“ en alheimsöflin voru ekki að taka boltann og enginn vildi gefa plötuna út.
Ég kíkti aftur á bókina hans Brians og sá að ég hafði misskilið boðskapinn. Hún lofaði ekki gull og grænum skógum — hún var hvatning til þess að breyta um hugarfar og stíga inn í óvissuna.
Eftir á að hyggja var ég rétt að byrja – kominn af stað.
Platan kom út. Ég fann lítinn útgefanda. Ég túraði heiminn — ekki á fimm stjörnu hótelum, heldur í heimagistingum og því ódýrasta sem var í boði.
Þremur árum síðar gat ég í fyrsta sinn borgað mér laun.
Gleðilegan febrúar!
– Mugison
> [!note]- Plögg – eins og það stóð í bréfinu
> **Er að leita að hugmyndum** – Ég verð 50 ára í ár og er að leita að hugmyndum til þess að halda upp á það! Hvað dettur þér í hug?
%% Úr póstlistabréfi (Brevo) 10. feb 2026. Upprunalega bréfið: myndir/Fréttir/…(póstlistabréf).html. Lonely Mountain-umslagið var 200px í bréfinu → nota umslagið úr myndir/ í staðinn. Sleppt: kveðjan + „þú færð þetta bréf…“, afskráning. %%