# Apapabbinn í Afríku *23. mars 2026 · póstlistabréf nr. 5* ([klikkaðu hér](https://0cd21327.sibforms.com/serve/MUIFAAH2QonpZQ48zXHF4DZlSw7tfdCh2Yn7Abw35VOpmVnB34Zll0VBz_RPJES6OxBjHbVxYLoABj0dmO98-MQk1wLlt9Bk5TyC9TB8EnwQPapmZreacsJZwcsDULHQtmFQ5XJaflCG7i81JmIVRfoseqOYRYyP-hblCaur_3aBfW7a3uGvEtblKowZYpYOICetVm_s6xxyoFN4) ef þú vilt vera á póstlistanum og fá bréf 3–6 sinnum á ári) *English: [[Blog/2026-03-23 Monkey Dad in Africa|Monkey Dad in Africa]]* ![[myndir/Fréttir/2026-03-23 Apapabbinn 0 - Man Utd.jpg]] ## Api í Afríku Þegar ég var sex ára fluttum við fjölskyldan frá Bolungarvík til Grænhöfðaeyja. Eyjarnar liggja í Atlantshafinu, aðeins sunnar en Kanaríeyjar, undan ströndum Afríku. Við bjuggum þarna í nokkur ár með hléum; yfirleitt hálft árið þar og hinn helminginn annars staðar. Þegar ég var níu ára keypti vinur pabba lítinn apa sem gæludýr. Ég var gjörsamlega heillaður og notaði hvert tækifæri til að kíkja í heimsókn og fá að leika við apann. Apinn átti sitt eigið herbergi og hafði það virkilega gott. Þrátt fyrir mikinn aldursmun urðum við vinur pabba bestu mátar og ég kallaði hann aldrei annað en **Apapabba**. Hann var nýskilinn og dálítið drykkfelldur á þessum tíma, en hann var alltaf kátur þegar ég kom í heimsókn, til í að spjalla og leyfa mér að vera með apanum. ![[myndir/Fréttir/2026-03-23 Apapabbinn 1 - Apinn.jpg]] *Þetta er ekki Apapabbinn – en þetta er apinn* ## Viðskiptahugmynd Smám saman fór mig að dreyma um að eiga apann sjálfur. Apapabbi var oft úti á sjó og þá kom kona sem sá um að gefa apanum, en þá mátti ég ekki leika við hann. Næst þegar Apapabbi kom í land var ég því ákveðinn: Ég ætlaði að kaupa apann. Ég bauð mér í kaffi til hans og bar upp erindið. Apapabba varð dálítið um og þá hóf ég söluræðuna. Ég útskýrði fyrir honum að það væri miklu betra fyrir apann að vera hjá einhverjum sem nennti að leika við hann allan daginn. Ég væri auk þess ekkert að fara á sjóinn eins og hann og yrði því alltaf heima. Apapabbi spurði hvað ég ætlaði að borga. Þegar ég viðurkenndi að ég væri ekki alveg kominn svo langt í skipulagningunni, hló hann hátt. Ég sagðist sko geta gert ýmislegt. Hann hló enn hærra og sagði: „Litli Muggi, förum á barinn og ræðum viðskiptin þar. Það er ómögulegt að gera þetta hérna, apinn heyrir of vel í okkur.“ Ég var hjartanlega sammála. ![[myndir/Fréttir/2026-03-23 Apapabbinn 2 - Kvöldmatur.jpg]] ## Samningaviðræður Við röltum á næsta bar. Apapabbi keypti kók handa mér og drykk fyrir sig. Við ræddum ekkert um viðskipti strax; hann reytti af sér brandara og ég hermdi eftir Elsu Lund þar til hann hló sig máttlausan. Þegar drykkirnir kláruðust fórum við á næsta bar. Þar pantaði hann aftur handa okkur – kók fyrir mig og drykk fyrir sig – en þegar kom að því að borga áttaði hann sig á því að peningarnir voru búnir. Apapabbi var samt fljótur að hugsa. Hann sannfærði barþjóninn um að taka derhúfuna sína upp í greiðslu gegn því að hann leysti hana út síðar. Þegar þeir drykkir kláruðust hélt sagan áfram. Á næsta bar fór bolurinn, svo skórnir og sokkarnir, og að lokum stuttbuxurnar. Þarna, seint um kvöldið, sátum við og sötruðum síðustu drykkina á meðan Apapabbi var einungis í nærbuxunum. Þá loksins fóru viðskiptin fram. Hann trúði mér fyrir því að apinn hefði verið með niðurgang í nokkra daga og herbergið hans væri orðið hræðilegt. Ef ég myndi þrífa það hátt og lágt, gólf og veggi, þá yrði það fullnaðargreiðsla fyrir apann. Ég hoppaði hæð mína af kæti! Ég lofaði að mæta strax í fyrramálið og taka svo apann með mér heim. Við fögnuðum með því að syngja „Wild Thing“ saman og hlógum endalaust. ![[myndir/Fréttir/2026-03-23 Apapabbinn 3 - Sófinn.jpg]] ## Elsku mamma Við stóðum upp, ætluðum að rölta út í bláinn og fagna þessum stórkostlega samningi. Við gengum hönd í hönd, syngjandi í gegnum hverfi þar sem húsin voru búin til úr útflettum olíutunnum. Þá sá ég par í fjarska. Konan var að gráta. Þegar við nálguðumst tók konan sprett, réðst á Apapabba og kallaði hann öllum illum nöfnum. Ég áttaði mig allt í einu á því að þetta var mamma mín. Ég hafði aldrei séð hana svona reiða og skildi ekkert í því af hverju hún væri að lemja besta vin minn. Það kom í ljós að foreldrar mínir höfðu leitað að mér í allan dag og fram á nótt. Ég hafði hreinlega gleymt að láta vita af þessari mikilvægu „bissnessferð“. Mömmu var svo brugðið að finna mig með hálfnöktum manni í vafasömu hverfi seint um kvöld að hún réð einfaldlega ekki við sig. En samningurinn hélt! Daginn eftir mætti ég og skrúbbaði herbergið hátt og lágt. Þegar Apapabbi var orðinn sáttur, fékk ég loksins apann minn að launum. > [!note]- Plögg – eins og það stóð í bréfinu > - **11. apríl** · Stykkishólmskirkja – Ein fallegasta kirkja landsins, með geggjuðu sviði. > - **26. apríl** · Grundarfjarðarkirkja – Ein best hljómandi kirkja landsins ❤️ > - **23. apríl** · Hvanneyrarkirkja – Hér er hægt að næra líkama og sál í fallegu umhverfi. Geggjað þorp. > - **24. apríl** · Hlaðan að Hjalla (Hvalfjörður) – Geggjuð hlaða, geggjað tónleikahús hjá þeim Hermanni og Birnu. %% Úr póstlistabréfi (Brevo) 23. mars 2026. Upprunalega bréfið: myndir/Fréttir/…(póstlistabréf).html. Sleppt: kveðjan + „þú færð þetta bréf…“, afskráning, miðahlekkir (dauðir). Dagsetningaröðin í plögginu er eins og í bréfinu. %%