# Sumarvinna og Lögreglurannsókn *16. júní 2026 · póstlistabréf nr. 6* ([klikkaðu hér](https://0cd21327.sibforms.com/serve/MUIFAAH2QonpZQ48zXHF4DZlSw7tfdCh2Yn7Abw35VOpmVnB34Zll0VBz_RPJES6OxBjHbVxYLoABj0dmO98-MQk1wLlt9Bk5TyC9TB8EnwQPapmZreacsJZwcsDULHQtmFQ5XJaflCG7i81JmIVRfoseqOYRYyP-hblCaur_3aBfW7a3uGvEtblKowZYpYOICetVm_s6xxyoFN4) ef þú vilt vera á póstlistanum og fá bréf 3–6 sinnum á ári) *English: [[Blog/2026-06-16 Summer Job and a Police Investigation|Summer Job and a Police Investigation]]* ![[myndir/Fréttir/2026-06-16 Sumarvinna 0 - Boombox.jpg]] ## Gettoboys Sumarið 1988, þegar ég var tólf ára, stálum ég og Sæi tæplega þúsund eintökum af DV úr öllu Breiðholtinu. Hvorki gáfulegt né skynsamlegt. Drengir verða ekki menn nema þeir fái að hlaupa sjálfviljugir á veggi. Einsog margar glæpasögur þá fjallar þessi saga um fíkn — bíófíkn. Ég ólst upp í Breiðholtinu, í Vesturbergi 74, nákvæmlega mitt á milli Hólanna og Fellanna. Í Hólabrekkuskóla kynntist ég hópi af yndislegum kolbrjáluðum unglingum sem eru enn vinir mínir í dag. Einn þeirra heitir Sæþór, en hefur alltaf verið kallaður Sæi. Við bárum út blöð á morgnana — Þjóðviljann, Morgunblaðið.. Allt nema DV. Við vöknuðum fyrir allar aldir og klæddum okkur hálf meðvitundarlausir í það sem lá á gólfinu. Sæi var strax manna duglegastur. Innst inni fannst mér þetta hins vegar leiðinlegasta vinna í heimi. ![[myndir/Fréttir/2026-06-16 Sumarvinna 1 - Breiðholt.jpg]] ## Prakkarar Sumarið 1988 vissum við ekkert skemmtilegra en að fara í bíó. Helst Jackie Chan eða Indiana Jones. Vandamálið var bara að bíó kostaði peninga og við áttum sjaldan peninga. Þess vegna þróuðum við aðferðir sem tók ekki eins á budduna. Í Laugarásbíó settum við til dæmis í púkk fyrir einum miða — sá sem keypti fór inn á klósettið og opnaði glugga sem við hin gátum prílað inn um. Kerfið virkaði í nokkrar vikur, þar til einn félagi, aðeins betur nærður en við hinir, festist í gluggaopinu. Við reyndum að tosa hann út og ýta honum inn en hann panikkaði og byrjaði að sprikkla einsog fiskur. Þá brotnaði glugginn. Nokkrum dögum síðar var kominn nýr — með rimlum. Í Sambíóunum notuðum við falsaða miða en þar komst líka upp um okkur. Þar með voru flestar leiðir inn í bíóhús borgarinnar orðnar torfærar. Einn daginn sátum við Sæi og ræddum þessi mál og fundum lausn: við þyrftum bara að stela fimm DV-blöðum hvor og selja niðrí bæ. DV kostaði hundrað kall — fimm blöð á mann voru bíómiðar, popp og kók. Við prófuðum og allt gekk upp. Í nokkrar vikur stálum við tíu blöðum, seldum á afslætti og fórum í bíó. ![[myndir/Fréttir/2026-06-16 Sumarvinna 2 - Ég og Sæi.jpg]] *Ég og Sæi að plotta* ## Frumkvöðlar! Einsog stundum vill verða þegar vel gengur vaknaði í okkur frumkvöðull. Við föttuðum að við værum orðnir ansi góðir í þessu og að hægt væri að gera þetta á stærri skala — græða meira fyrir minni vinnu. Þarna stofnuðum við í huganum Gettocorp ehf. þar sem við vorum framkvæmdastjórar, eigendur og starfsmenn mánaðarins. Afhverju að stela tíu blöðum hundrað sinnum þegar maður getur náð í öll þúsund í einni ferð? Við vissum nákvæmlega hvar DV-börnin áttu heima og hvar búntin lágu. Áætlunin var kristaltær. Við myndum stela öllum DV-blöðum í Breiðholtinu, selja þau og vera svo ríkir að við gætum farið í bíó allt sumarið, jafnvel langt fram á vetur. Við vöknuðum extra snemma einn laugardagsmorgunn. Bárum fyrst út okkar eigin blöð. Síðan sóttum við DV-búntin af tröppum og stéttum um allt hverfið og fluttum í rjóður á milli Efra- og Neðra-Breiðholts. Þegar við hittumst þar lágu blaðabúnt út um allt. Okkur leið eins og við værum Pablo Escobar — nema við vorum að sýsla með dagblöð í stað kókaíns. Fljótlega kom í ljós að við gátum aðeins borið um fimmtíu blöð í hverjum poka, tvo poka á mann. Af tæplega þúsund blöðum gátum við því aðeins tekið tvö hundruð í fyrstu ferð. Við fórum á sitthvorn útganginn í Kringlunni og söngluðum út í loftið: „DV til sölu! Hundrað kall!“ Ef fólk gekk fram hjá lækkuðum við samstundis: „Fimmtíu kall!“ Og fólk keypti. Blöðin runnu út á afslætti. ## Lögreglurannsókn Um hádegið var fyrsta sendingin næstum uppseld. Þá birtist lögreglan. Einn lögreglumaður gekk að mér og sagði góðan daginn. Ég spurði kurteislega hvort hann vildi ekki kaupa DV á afslætti. Það reyndist vera mistök. Þeir fundu Sæa skömmu síðar og keyrðu okkur beint í prentsmiðju DV í Brautarholti, þar sem hópur af reiðum fullorðnum beið. Okkur var sagt að þurft hefði að kalla út aukavakt til að prenta aftur fyrir allt Breiðholtið. Ein kona sagði: „Þið eruð búnir að eyðileggja helgina!“ „Hvað tókuð þið mörg blöð?“ „Svona fimmtíu,“ sagði Sæi fullur sjálfsöryggis. „Og hvar eru hin tæplega þúsund?“ spurði yfirprentarinn og horfði beint í augun á mér. Þá brotnaði ég og fór að gráta. En svo varð ég reiður útí þennan prentara og vissi að lygin væri eina leiðin út. Á milli ekkasoganna sagði ég: „Stóru strákarnir eru með restina, við fengum bara nokkur blöð því okkur langaði að prófa.“ Þessi lygi kom bara uppúr mér einsog hnerri sem gerir ekki boð á undan sér. Svo grét ég meir og önnur löggan tók utanum mig og huggaði. Á nokkrum mínútum hafði hún smíðað heila kenningu um skipulagða glæpastarfsemi — við Sæi vorum skyndilega orðin fórnarlömb, tveir litlir blaðberar sem höfðu lent í klóm glæpaklíku. „Hvernig endar þetta eiginlega þarna uppi í Breiðholtinu?“ Þá settist ró á mannskapinn. Yfirmaður prentsmiðjunnar taldi peningana sem fundust á okkur, tók andvirði nokkurra blaða og lét okkur hafa afganginn — kannski tvö eða þrjú þúsund krónur. Ég leit á Sæa. Hann leit á mig og ég sá örlítið glott. Það glott sagði bara eitt: „Þú ert djöfulsins snillingur.“ Lögreglan var að keyra okkur heim þegar hún kom auga á konu sem var augljóslega ölvuð undir stýri á Suðurlandsbrautinni. Blá ljós, talstöðvar, U-beygja. Konan stöðvuð og færð inn í löggubílinn. Síðan spurðu lögreglumennirnir hvort við gætum ekki tekið strætó heim — þeir þyrftu að fara með hana niður á stöð. Við sögðumst geta það. Ekkert mál. Þegar þeir voru horfnir stóðum við tveir eftir í sólinni með nokkur þúsund krónur í vösunum. Klukkan bara tvö. Við sáum sóknarfæri. Löbbuðum yfir Laugardalinn beint í Laugarásbíó, keyptum popp og kók og horfðum á Jackie Chan í *Dragons Forever* að berja vonda eiturlyfjabaróna. Á meðan lögreglan leitaði enn að stóru strákunum. > [!note]- Plögg – eins og það stóð í bréfinu > Þemað hjá mér í sumar er að spila eins mikið úti og ég get. Það er svo geggjað að vera með fólki á fallegum stað og spila tónlist. Ég elska það. > > Tónleikarnir byrja yfirleitt kl. 15:00 og standa í um klukkustund. Fólk mætir með teppi eða garðstóla og hefur með sér heitt kakó. Á Vopnafirði mætti ein ofurmamman með borð og lagði á það bakkelsi, rjóma og nammi fyrir sig og sitt fólk. Yndislegt. > > Ég er búinn með níu tónleika og á eftir að spila 21 til viðbótar: > > - **17. júní** · Hvammsvík Hot Spring > - **20. júní** · Þingvellir (Bergmál) – Kaleó-þingvallar snilldin ❤️ > - **21. júní** · Eyrarbakki – garðurinn hjá Byggðasafni Árnesinga > - **26. júní** · Vestmannaeyjar, Skansinn – Heimaklettur í sjónmáli! Ævintýri. kl 19:00 > - **27. júní** · Akranes, við Akranesvita – útsýni yfir bæinn og Faxaflóa > - **28. júní** · Reykjavík, Lottutún – í Elliðaárdalnum við Elliðaárstöð, yndislegur staður > - **5. júlí** · Þórsmörk, Básum – Básar eru í Goðalandi > - **11. júlí** · Akureyri, Lystigarðurinn – einn af mínum uppáhalds > - **12. júlí** · Húsavík, Skrúðgarðurinn – alltaf unun að spila fyrir Húsvíkinga > - **18. júlí** · Hofsós, við Safnasvæðið – þarna í brekkunni, geggjaður staður > - **25. júlí** · Bolafjall í Bolungarvík – On top of the world!! > - **26. júlí** · Ísafjörður, Austurvöllur – hjarta bæjarins. Sakna Ísafjarðar og þín :-) > - **1. ágúst** · Hafnarfjörður, Paradísarlaut – á bak við St. Jósefskirkju > - **2. ágúst** · Seltjarnarnes, Valhúsarhæð > - **3. ágúst** · Öskjuhlíð, Unaðslautin – við Perluna, frídagur verslunarmanna > - **8. ágúst** · Borgarnes, Skallagrímsgarður – kl 14:00 > - **15. ágúst** · Heiðmörk, leynistaður > - **20. ágúst** · Sundlaugin að Hlöðum – sundtónleikar kl 20:00 í Hvalfirði > - **23. ágúst** · Guðmundarlundur í Kópavogi > - **29. ágúst** · Selfoss, Miðbæjartorgið > - **30. ágúst** · Mosó – einhvers staðar í Túninu heima %% Úr póstlistabréfi (Brevo) 16. júní 2026. Upprunalega bréfið: myndir/Fréttir/…(póstlistabréf).html. Sleppt: kveðjan + „þú færð þetta bréf…“, afskráning, miða-/Facebook-hlekkir (dauðir), „Uppselt“ við Hvammsvík, beiðnin um að deila á Facebook, og Dragons Forever-plakatið (Google-skjáskot með Lens-tákni – liggur samt í myndir/Fréttir/ ef Mugison vill það inn). %%