# Airwaves í tólfta skipti
*10. nóvember 2026*
*English: [[Blog/2026-11-10 Airwaves for the Twelfth Time|Airwaves for the Twelfth Time]]*
Ég spilaði á Iceland Airwaves um helgina, í tólfta sinn. Fyrsta skiptið var 2003. Þá var ég á Accidental Records, útgáfunni hans Matthew Herbert, og bauð Airwaves díl: ef ég fengi að spila myndi ég redda Matthew til landsins með plötusnúðasett. Þau sögðu já. Svo kom dagskráin og ég átti að spila klukkan fimm á laugardegi. Ungur og hrokafullur ausaði ég yfir þau skömmum. Ég vildi vera á besta tíma á NASA þar sem stjörnurnar voru. Þau sögðu að fólk myndi byrja daginn þarna og sósast svo fram eftir kvöldi, þetta væri frábær tími. Mér fannst það lélegar ástæður og var alveg hundfúll.
Svo kom dagurinn. Hádegismatur hjá mömmu, strætó í bæinn og við stilltum upp úti í horni á Pravda. Ég var skíthræddur poppari í bullandi minnimáttarkennd, viss um að blaðamennirnir væru allir svo þunnir að þeir myndu rétt vakna í kvöldmat. En rétt fyrir tónleika byrjaði fólk að streyma inn, endalaust af blaðamönnum og skemmtilegu fólki, og kofinn var pakkaður. Mér leið eins og ég væri heima hjá ömmu og afa, endalaus ást í loftinu. Í lokin tók ég [[08 - Poke A Pal|Poke A Pal]], síðasta lagið á fyrstu plötunni, og allir sungu með eins og þetta væri fjöldasöngur. Ég var í skýjunum.
Svo komu dómarnir, í blöðum erlendis og á bloggsíðum, heill hellingur. Ég sendi þá með tölvupóstum á tónleikahaldara út um alla Evrópu og var bókaður út árið. Þarna fór ferillinn í annan gír og ég át hattinn minn: Airwaves hafði rétt fyrir sér, þetta var besti tíminn. Allir með fersk eyru. Ég verð ætíð þakklátur fyrir þetta tækifæri.
![[myndir/Fréttir/2026-11-10 Airwaves 1 - Ráðhúsið.jpg]]
*Á LinnStrumentinu í Ráðhúsinu, 7. nóvember*
Í ár, 23 árum seinna, leit ég aðeins um öxl. Ég tók nokkur lög sem ég hef ekki spilað á Airwaves lengi lengi, t.d. Poke A Pal sem ég hef ekki spilað á hátíðinni síðan 2003 – ég tók það í nýrri útgáfu á LinnStrumentinu. Airwaves er svo jákvæð sprauta fyrir okkur tónlistarfólkið – það æfa allir upp eitthvað nýtt og spennandi og leggja sig alla fram – það er galdurinn við þessa hátíð. Innilega til hamingju, Iceland Airwaves, og takk kærlega fyrir mig. Ég grátbið ykkur um að bóka mig sem fyrst aftur, ég er ykkar maður ❤️
## Airwaves-árin mín
- **2003** · Pravda, með Matthew Herbert
- **2004** · NASA
- **2006** · Listasafnið
- **2007** · NASA
- **2010** · á Iðnó (með Mirstrumentið + band og stúlknakór)
- **2011** · Norðurljós í Hörpu – með bandinu
- **2012** · Harpa – hljóp í skarðið fyrir [Swans](https://thequietus.com/news/iceland-airwaves-sigur-rose-review/), sem komust ekki út af fellibylnum Sandy
- **2014** · Silfurberg í Hörpu
- **2020** · Live From Reykjavík – streymt, covid-árið
- **2023** · í Listasafninu með 10 manna hljómsveit
- **2025** · Eldborg – með [Sinfó](https://www.sinfonia.is/tonleikar-og-midasala/mugison-og-sinfo-ia25-partner-event), tvö kvöld
- **2026** · Ráðhúsið – [Grapevine skrifaði um það](https://grapevine.is/music/live-music-review/2026/11/08/day-three-iceland-airwaves-2026-reykjavik-grapevine-coverage/)