![[myndir/Lonely Mountain umslag.jpg]] # Lonely Mountain (2003) Október 2002 á Íslandi, 2003 erlendis. **Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/4ooulTd5FzvxFTmRTNvNJP) · [iTunes](https://itunes.apple.com/us/album/lonely-mountain/1085398510) · [Soundcloud](http://soundcloud.com/mugison) > [!note]- Pistill um plötuna > Árið 2000 flutti ég til London að læra upptökur. Þar á undan var ég sendill hjá Kaupþingi, rúntaði um bæinn með bréf til undirritunar og hlustaði á hljóðbækur. > > Það var geggjað að vera óskrifað blað í nýju landi. Ekki Öddi, Pöddi eða Skíta-Röddi úr MH. Ég bjó mig til upp á nýtt. > > Vendipunkturinn var hljóðkort í fartölvuna. VX Pocket, á stærð við Visakort, með XLR-köplum sem stóðu út úr. Björk og Aphex Twin áttu svona. Mér fannst ég kominn 200 ár inn í framtíðina. > > Ég eyddi LÍN-peningunum í tölvuna og átti ekki fyrir leigu. Svaf í sófum hjá bekkjarfélögum, passaði íbúðir. Var á fullu í plötunni og á fullu í skólanum. Langskemmtilegasti tíminn í London. > > Ég sósaði mig í músík. Rough Trade vikulega, Barbican-bókasafnið, Matthew Herbert, Matmos, Bogdan Raczynski, múm. Squarepusher í Shepherd's Bush Empire breytti lífi mínu – þar sá ég að raftónlist gæti verið jafn hættuleg live og Nick Cave. Í skólanum í London kynntist ég mínum besta manni, [[Birgir Jón Birgisson|Birgi Jóni Birgissyni]]. Hann (á sinn lúmska hátt) bústaði sjálfstraustið hjá mér þannig að ég fór í alvöru að trúa að ég ætti að prófa að bralla meira og meira – þvílík lukka að eiga hann sem andlegan stóra bróður. > > Friðrik Sturluson úr Mezzoforte hjálpaði mér að láta pressa diskinn. Ég og Biggi tókum lest heim til hans í Surrey og sóttum fyrstu þúsund eintökin. Hljómalind tók örfá. Hinar búðirnar vildu ekki sjá þetta, eðlilega. > > Ég átti fyrir tíu diskum, tíu frímerkjum og tíu umslögum til að senda á uppáhaldsútgáfurnar mínar. Brennarinn bilaði á disk númer tíu. Þá sá ég majóneskrukku í eldhúsinu. Prumpaði í hana og sendi með miða: *ef þið fílið prumpið, þá fílið þið líklega músíkina mína.* Krukkan fór til Twisted Nerve í Manchester. Þeir svöruðu: „Við elskum prumpið þitt." Þeir gáfu út Sea Y (sem hét þá CY) sem smáskífu nokkrum vikum seinna. > > Einn diskurinn var ástarbréf til Matthew Herbert. Ég bjóst ekki við svari. Hann bauð mér í mat. Að endingu – kannski til að losna við vælið í mér – gaf hann plötuna út á Accidental. Hann, John Wright og Ralph Rondeau bjuggu mig til næstu tvö árin. Ég á þeim allt að þakka. > > Fyrstu tónleikarnir sem Mugison voru í Bíóhöllinni á Akranesi, einn með fartölvu, að hita upp fyrir bíómynd. Í salnum: leikstjórinn, ein ókunnug kona og Hildur Karen frænka mín. Geggjuð byrjun. > > Ég endaði á að sauma 10.000 eintök fyrir Accidental í saumavél – það er önnur saga sem verður sögð seinna :-) > [!note]- About the album in English > In 2000 I moved to London to study sound engineering. Before that I was a courier for a bank, driving around Reykjavík with papers to be signed, listening to audiobooks. > > It was brilliant being a blank page in a new country. Not Öddi, Pöddi or Shitty-Röddi from high school. I made myself up again. > > The turning point was a sound card for my laptop. A VX Pocket, the size of a credit card, with XLR cables sticking out of it. Björk and Aphex Twin had one. I felt 200 years into the future. > > I spent my student loan on the computer and couldn't pay rent. Slept on classmates' sofas, house-sat flats. Working flat out on the album and flat out at school. The best time I had in London. > > I soaked myself in music. Rough Trade every week, the Barbican library, Matthew Herbert, Matmos, Bogdan Raczynski, múm. Squarepusher at Shepherd's Bush Empire changed my life – that's where I saw electronic music could be as dangerous live as Nick Cave. At school in London I met my best man, [[Birgir Jón Birgisson]]. In his sly way he boosted my confidence until I genuinely believed I should try more and more – what luck to have him as a spiritual big brother. > > Friðrik Sturluson from Mezzoforte helped me get the CD pressed. Me and my friend Biggi took the train to his house in Surrey and picked up the first thousand copies. One record shop in Reykjavík took a few. The others didn't want to know, fair enough. > > I had money for ten CDs, ten stamps and ten envelopes to send to my favourite labels. The burner died on disc number ten. Then I saw a mayonnaise jar in the kitchen. I farted in it and sent it with a note: *if you like the fart, you'll probably like my music.* The jar went to Twisted Nerve in Manchester. They wrote back: "We love your fart." They released Sea Y (then called CY) as a single a few weeks later. > > One disc was a love letter to Matthew Herbert. I didn't expect a reply. He invited me to dinner. In the end – maybe to stop me whining – he put the album out on Accidental. He, John Wright and Ralph Rondeau made me over the next two years. I owe them everything. > > My first show as Mugison was at the cinema in Akranes, alone with a laptop, opening for a film. In the audience: the director, a woman I didn't know, and my cousin Hildur Karen. A brilliant start. > > I ended up sewing 10,000 copies for Accidental on a sewing machine – that's another story, for later :-) ## Lögin / Songs - [[01 - Sea Y]] - [[02 - Ear]] - [[03 - One Day She'll Park The Car]] - [[04 - I'm On Fire]] - [[05 - Pet]] - [[06 - Probably]] - [[07 - The Night Is Limping]] - [[08 - Poke A Pal]] --- ## Kredit **All songs by Mugison.** All instruments, production, arrangements and vocals by [[Fólk/Mugison|Mugison]]. - [[Birgir Jón Birgisson]]: Mastering, co-mix, pródúser á Poke A Pal - [[Pétur Ben]]: Gítar og bakraddir á Poke A Pal - [[Luis Véles]]: Bassi á The Night Is Limping - [[Javier Weyler]]: Trommur á Pet - [[Omutant Moon]]: Texti á Sea Y, meðhöfundur texta á I'm On Fire **Hljóðfæraleikarar og söngvarar / Who played what:** - [[Birgir Jón Birgisson]]: Pródúser - [[Javier Weyler]]: Trommur - [[Luis Véles]]: Bassi - [[Pétur Ben]]: Rafgítar, bakraddir **Cover art:** [[Hannes Sasi Pálsson]] (Sasi) · **Ltd. edition artwork:** [[Kjartan Hallur]] · **Annað artwork:** Mugi og Rúna ![[myndir/Lonely Mountain - Biggi.jpg]] *This man produced 'Poke a pal', helped me mix the album and mastered it. He is sometimes called Mugimaster or Mugimonkey, but his 'real' name is Biggi and he's okey although he looks scary. Takk fyrir allt Biggi þú ert algerlega ómetanlegur gullnáma og Pétur þú líka.* ## Þakkir ![[myndir/Lonely Mountain - þakkir.jpg]] Takk fyrir: Janus, Tinna, Binna, Diddi, Dagný, Skúli, Hálfdán Bjarki, Dagur, Rikki, Árni, Magni, Luis, Pedro, Charly the F, Kata, Hannes, Mark Wellington, Kjartan fyrir myndina og vinskap, Birna, stóra fjölskyldan, allir sem kaupa diskinn og hlusta, Jói, Lárus, Einar, 12 tóna klíkan – takk takk, Tobbi, Tristan, Joseph, Ísafjörður (sérstaklega hafnarstarfsmönnum), Önni og fjölskylda, Maggi, Tóti, Árni Matt, Óli Palli, Freyr, Viddi, amma og afi, Moster, Kristján, Pedro. Súpertakk: Mamma, Pálmi, Helga, Papamug, Matthew and Dani, John, Raf, the Ducks, Biggi, Pétur, Kippi, Nalli, Lilja, Ásta, Reynar, Erla og Sigurjón, afi og amma. Mega mega takk: Rúna ❤️ Mega mega takk: Rúna ♥ ## Meira úr bæklingnum ![[myndir/Lonely Mountain - one ear.jpg]] ![[myndir/Lonely Mountain - dark.jpg]]