![[myndir/Mugimama umslag.jpg]] # Mugimama, is this Monkey Music? (2004) Október 2004. **Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/3RZsGHMa4GFDRWXWBtNlYg) · [Soundcloud](http://soundcloud.com/mugison) > [!note]- Pistill um plötuna > Ég gerði Mugimama á hlaupum. Úti um allan Ísafjörð, úti um alla Reykjavík og víða í Evrópu. Ég spilaði eins og brjálæðingur alls staðar þar sem menn vildu fá mig. Ef ég fékk að borða og gistingu þá var ég til. > > Ég skrifaði mér manifestó uppi á fjalli við Ísafjörð. Einn hluti af því: á þessari plötu mátti ég bara vinna með fólki sem stóð mér næst. Þess vegna eru mamma og pabbi, Rúna kærastan mín, Helga systir og afi með. Amma þorði ekki að syngja. Og svo Pétur, Biggi og fleiri. > > [[Pétur Ben]] – við urðum andlegir bræður átján ára. Hann hefur alltaf verið uppáhaldstónlistarmaðurinn minn og fáir hafa stutt mig jafn dyggilega á minni vegferð. Hann spilar í mörgum lögum á Mugimama. Ég bað hann að *prófa að gera eitthvað við Murr Murr* – lag sem ég hafði ekki rosalega trú á, bara beinagrind: einstrengja gítar og rödd. Hann tók upp gítarinn og guð minn góður, allt fór á yfirsnúning – músík, hæfileiki, leikgleði og grallaraskapur. Þetta lag setti mig á kortið og án hans væri ég ekkert. Takk Pétur. > > Ég átti einn míkrafón. Røde, 14.000 kall, ódýrasti mækinn í búðinni. Trommurnar í fyrsta laginu tók ég upp með því að halda á mæknum og elta trommuleikinn – þegar hann fór yfir á tommurnar og pákuna, þá elti ég hann hringinn og aftur að hi-hattinum. Mér fannst þetta æðislegt. > > Hluti af Salt (lag nr. 10) var tekinn upp í opnum skúr á lóð Listaháskólans. Óttar kom með bassann í frímínútum. Grímur kom með klarinettuna í næstu frímínútum. Restin varð til í flugvélum, á flugvöllum og í lestum. Ableton Live, allt hægt. > > Rúna varð ólétt og við fluttum til Reykjavíkur rétt áður en platan kom út. Svo gerðist hið ótrúlega: Murr Murr sló í gegn. Guðni Már og Óli Palli á Rás 2 spiluðu það svo mikið að það varð vinsælt. Allt í einu var ég eins og fegurðardrottning, allar dyr opnuðust. > > Ég bókaði NASA fyrir útgáfutónleika þótt ég vissi að ekki nógu margir þekktu mig. Þar höfðu Sálin og Nýdönsk spilað – ég varð að fá að spila þarna. Ég hafði miðann fáránlega ódýran, 350 kall. Þegar leið að tónleikunum var allt brjálað. 1.200 manns í húsinu. Datt í það, svaf í flugvélinni og spilaði í London daginn eftir. > > Elsku Dýri okkar fæddist í janúar 2005, þvílíkur engill. Ég var heima í tvo mánuði max, svo út að túra. Hróarskelda, upphitanir, spilaði eins og brjálæðingur. Vann plötu ársins og lag ársins – sem er extra skemmtilegt þar sem platan var gerð með 14.000 króna míkrafón. Grímur rukkaði 500 kr. fyrir klarinettuna – þannig að tótal kostnaður var 14.500 kr. > > Ég hélt ég gæti gert fimm plötur árið eftir. Byrjaði á þeim öllum. Svo fór tíminn í að túra um heiminn. Þetta var allt leikur og það mátti allt, ótrúlegt allt saman. > [!note]- About the album in English > I made Mugimama on the run. All over Ísafjörður, all over Reykjavík and across Europe. I played like a madman anywhere anyone wanted me. If I got food and a bed, I was in. > > I wrote myself a manifesto on a mountain above Ísafjörður. One rule: on this album I could only work with the people closest to me. So my mum and dad are on it, my girlfriend Rúna, my sister Helga, and my grandad. Grandma didn't dare sing. Plus Pétur, Biggi and a few more. > > > [[Pétur Ben]] – we became spiritual brothers at eighteen. He's always been my favourite musician and few have backed me as faithfully on my way. He plays on many songs on Mugimama. I asked him to *try something with Murr Murr* – a song I didn't have much faith in, just a skeleton: one-string guitar and voice. He picked up the guitar and good god, everything went into overdrive – music, talent, playfulness and mischief. That song put me on the map and without him I'd be nothing. Thank you Pétur. > I owned one microphone. A Røde, the cheapest mic in the shop. The drums on the first track I recorded by holding the mic and chasing the drummer – when he went round the toms I followed him round and back to the hi-hat. I thought it was wonderful. > > Part of Salt (track 10) was recorded in an unlocked shed on the grounds of the Iceland Academy of the Arts. Óttar came with his bass during a break. Grímur came with the clarinet during the next break. The rest happened on planes, in airports and on trains. Ableton Live, anything possible. > > Rúna got pregnant and we moved to Reykjavík just before the album came out. Then the unbelievable happened: Murr Murr took off. Two DJs on national radio played it so much it became a hit. Suddenly I was a beauty queen, every door opened. > > I booked NASA, the big venue in Reykjavík, for the release show, knowing not enough people knew who I was. Every band I'd looked up to had played there – I had to. I made the ticket ridiculously cheap, 350 krónur. By the time the show came, it had gone mad. 1,200 people in the room. Got drunk, slept on the plane and played London the next night. > > Our darling Dýri was born in January 2005, what an angel. I was home two months max, then off on tour. Roskilde, support slots, playing like a madman. Won album of the year and song of the year – which is extra fun, since the album was made with a 14,000 krónur microphone. Grímur charged 500 krónur for the clarinet – so the total cost was 14,500 krónur. > > I thought I'd make five albums the next year. Started them all. Then the time went on touring the world. It was all a game, and anything went. Unbelievable, all of it. ## Lögin / Songs - [[01 - I Want You]] - [[02 - The Chicken Song]] - [[03 - Never Give Up]] - [[04 - 2 Birds]] - [[05 - What I Would Say In Your Funeral]] - [[06 - Sad As A Truck]] - [[07 - Swing Ding]] - [[08 - I'd Ask]] - [[09 - Murr Murr]] - [[10 - Salt]] - [[11 - Hold On 2 Happiness]] - [[12 - Afi minn]] --- ## Kredit **Lög og textar:** Mugison, nema Murr Murr og Salt (lag: Mugison og [[Pétur Ben]]) og Hold On 2 Happiness (lag: [[Rúna Esradóttir]]) **Hljóðfæraleikarar og söngvarar / Who played what:** - [[Pétur Ben]]: Kassagítar, Píanó, Gítar - [[Rúna Esradóttir]]: Rödd, Söngur, Píanó - [[Óttar Sæmundsen]]: Bassi - [[Grímur Helgason]]: Bassaklarinett - [[Helga Guðmundsdóttir]]: Rödd - [[Ragga Gísla]]: Söngur - [[Stefán Björnsson Önundarson]] - [[Ásgeir Óskarsson]]: Trommur - [[Ólöf Arnalds]]: Fiðla, víóla, strengir - [[Önundur Pálsson]]: Trommur **Tekið upp í Súðavík og á Ísafirði.** **Pródúser, upptökur og mix:** [[Fólk/Mugison|Mugison]] · **Meðpródúser:** [[Rúna Esradóttir]] · **Mastering:** [[Birgir Jón Birgisson]] (Big Ears) **Design:** [[Ragnar Kjartansson]] [[Rúna Esradóttir]], [[Alli Metall]], og Mugison > [!note]- Þakkir > ![[myndir/Mugimama - þakkir.jpg]] > *Úr bæklingnum – handskrifað. Lesið eftir bestu getu:* > > Love and thanks: my main lady, the mugilady, the only Rúna. Pabbi, mamma, Pétur, Biggi, Pálmi, Dóra, Erla, Helga, Ásta, Reynar, Lilja, Haukur, Stebbi, Ísafjarðarhöfn, Súðavík takk takk, Nalli, Eiríkur Örn, Janus og Tinna, 12 tóna drengir, Mister Patton and the Ipecac posse, Accidental Records, John, Raf, Beth, Pepe, dr. Rocket Herbertsson and Dani, Einar Örn og Bubbi, Trabant, Raggi snillingur, Múm (love you), Eiríkur og Samúli frú og baby, Ólöf Arnalds, Jamie og Emilíana, Charly, Ragnhildur, Kippi K, Gréta og Anna, Guðni M, Dóra og Einar, Skúli B, Ómar, Venni, Esra og Carol, Mister Plug, Mark… elsku Rúnu og Dýra.