![[myndir/Mugiboogie umslag.jpg]] # Mugiboogie (2007) Október 2007 á Íslandi, 2008 erlendis. **Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/1qcDIjsWcyLINjwTtSdUkd) · [iTunes](https://itunes.apple.com/us/album/mugiboogie/989422938) > [!note]- Pistill um plötuna > Vorið 2005 leigði ég tuttugu fermetra sumarbústað við Meðalfellsvatn. Vaknaði fyrir fimm, keyrði upp í Hvalfjörð, vann fram eftir degi og var kominn heim í kvöldmat. Þar byrjaði Mugiboogie. Að gera sjálfan mig útlægan í litlu húsi á fallegum stað – þannig virka ég best. Endalaust þakklátur Rúnu sem skilur þetta. > > Svo kom Mýrin inn á milli, við fluttum vestur, Eldar fæddist og Mýrin kláraðist uppi á skíðasvæði. Þá aftur í Mugiboogie, fyrst í einbýlishúsi á flóðasvæðinu í Hnífsdal, svo keyptum við Fögrubrekku í Súðavík og breyttum bílskúrnum í stúdíó. Fjörutíu fermetrar, hátt til lofts, gluggi í stað hurðar – ég horfði beint út á Álftafjörðinn. Draumastaður. > > Ég tók lán fyrir skúrnum og launum í hálft ár. Platan tók meira en hálft ár. Þegar hún kom út var allt rauðglóandi, ég hættur að fara í bankann að sjá hvað ég skuldaði. Ég var búinn að ákveða: ef þessi plata fer í hundana þá fer ég bara á sjóinn. > > Manifestóið: snúa baki við raftónlist og vera með fólki. Platan átti að vera best-of ímyndaðrar hljómsveitar sem hefði verið stórkostleg frá 1966 og fram yfir 1990. Alltaf á ystu nöf, meining í öllu, þetta áttu að vera stærstu lögin þeirra. Það gaf mér frelsi til að flakka – kassagítarlög, þungarokk, soul-rokk í anda Elvis, Zeppelin og Bítlafílingur. Ég hlustaði á best-of með Bítlunum, Queen, Led Zeppelin og ELO. Sepultura. Og gleymdu blúsarana á Fat Possum – Junior Kimbrough, R.L. Burnside, T-Model Ford. Svo hætti ég að hlusta og bjó til. > > Ég byrjaði að glamra með Adda og Guðna 2006 og úr því varð Mugiboogie-bandið: [[Arnar Þór Gíslason|Addi]], [[Guðni Þórarinn Finnsson|Guðni]], [[Davíð Þór Jónsson]] og [[Pétur Ben]]. Þeir eiga stóran þátt í plötunni, Pétur útsetti tvö lög og [[Birgir Jón Birgisson|Biggi]] límdi allt saman í mixi og masteringu. Of langt mál að telja upp alla sem komu að henni – takk öll, frá dýpstu hjartarótum. En ég verð að nefna [[Björgvin Gíslason]], eina mestu músíkölsku ofurhetju sem ég hef hitt. > > Í mínum huga var alveg eins líklegt að þetta yrði síðasta platan mín. Ég held að það hafi gert hana miklu betri en hún hefði orðið hefði ég verið vel stæður. Strögglandi maður með eld í sál og hjarta. Enginn efi, alltaf stigið næsta hænuskref af fullum þunga. > > Hún seldist í yfir tíu þúsund eintökum hér heima. Við túruðum með bandinu, pabbi var dræver. Svo gaf ég út sjálfur í Evrópu, náði dreifingarsamningum í fimm löndum – og drukknaði í samskiptum. Of mikill biti að vera frontmaður, lagahöfundur, upptökustjóri og umboðsmaður. Við Davíð Þór fórum einn hring um Bandaríkin, New York til LA. Dómar yfirleitt fjórar, fimm stjörnur – og einn núll stjörnu dómur í NME sem hafði sitt skemmtanagildi. > > Fólkið í Evrópu hafði komið að sjá rafmagnsgæjann. Svo mætti það aftur og þá var rokkhljómsveit. Eðlileg vonbrigði þegar maður sem selur fisk fer allt í einu að selja kjöt. Markaðslega missti ég örugglega af einhverju. En þetta var skemmtilegt. > [!note]- About the album in English > In spring 2005 I rented a twenty-square-metre summer cabin by a lake an hour from Reykjavík. Up before five, drove out, worked through the day and was home for dinner. That's where Mugiboogie began. Exiling myself to a small house in a beautiful place – that's how I work best. Endlessly grateful to Rúna for understanding this. > > Then the Mýrin film score came in between, we moved west, Eldar was born and Mýrin was finished up at the ski lodge. Back to Mugiboogie, first in a house on the avalanche zone in Hnífsdalur, then we bought a house in Súðavík and turned the garage into a studio. Forty square metres, high ceiling, a window where the door had been – I looked straight out onto the fjord. Dream spot. > > I took a loan for the garage and half a year's wages. The album took more than half a year. By the time it came out everything was glowing red, I'd stopped going to the bank to see what I owed. I'd decided: if this album goes to the dogs, I'll go back to sea. > > The manifesto: turn my back on electronic music and be with people. The album was to be the best-of of an imaginary band that had been magnificent from 1966 to the early nineties. Always on the edge, meaning in everything, these were to be their biggest songs. That gave me the freedom to wander – acoustic songs, heavy metal, soulful rock à la Elvis, Zeppelin and Beatles vibes. I listened to best-ofs by the Beatles, Queen, Led Zeppelin and ELO. Sepultura. And the forgotten bluesmen on Fat Possum – Junior Kimbrough, R.L. Burnside, T-Model Ford. Then I stopped listening and started making. > > I started jamming with Addi and Guðni in 2006 and out of that came the Mugiboogie band: [[Arnar Þór Gíslason|Addi]], [[Guðni Þórarinn Finnsson|Guðni]], [[Davíð Þór Jónsson]] and [[Pétur Ben]]. They're a big part of the record, Pétur arranged two songs and [[Birgir Jón Birgisson|Biggi]] glued it all together in the mix and mastering. Too many people to list – thank you all, from the bottom of my heart. But I have to mention [[Björgvin Gíslason]], one of the greatest musical superheroes I've ever met. > > In my head this could well have been my last album. I think that made it far better than it would have been if I'd been comfortable. A struggling man with fire in his heart. No doubt, always the next baby step, taken with full weight. > > It sold over ten thousand copies in Iceland. We toured with the band, my dad was the driver. Then I released it myself in Europe, landed distribution in five countries – and drowned in correspondence. Too big a bite to be frontman, songwriter, producer and manager. Davíð Þór and I did one lap of the USA, New York to LA. Reviews were mostly four or five stars – and one zero-star review in NME, which had its entertainment value. > > People in Europe had come to see the electronic guy. Then they came back and found a rock band. Fair enough to be disappointed when the man who sells fish suddenly starts selling meat. I probably missed something, market-wise. But it was fun. ## Lögin / Songs - [[01 - Mugiboogie]] - [[02 - The Pathetic Anthem (demo)]] - [[03 - To the Bone]] - [[04 - Jesus is a good name to moan]] - [[05 - George Harrison]] - [[06 - Deep Breathing]] - [[07 - I'm alright]] - [[08 - The Animal]] - [[09 - Two thumb sucking son of a boyo]] - [[10 - The great unrest]] - [[11 - My love I love]] - [[12 - Sweetest Melody]] --- ## Kredit **Songs and lyrics:** Mugison **Recorded and mixed by:** Biggi ([[Birgir Jón Birgisson]]) and Mugison, heima og í Sundlauginni **Mastered by:** [[Birgir Jón Birgisson]] **Produced by:** [[Fólk/Mugison|Mugison]], [[Birgir Jón Birgisson]] and [[Rúna Esradóttir]] **Hljóðfæraleikarar og söngvarar / Who played what:** - [[Davíð Þór Jónsson]]: Hammond, all kinds of horns, Moog, Celesta, the pump organ, Piano, Distorgan, vocals - [[Arnar Þór Gíslason]]: Drums, vocals - [[Guðni Þórarinn Finnsson]]: Bass, vocals - [[Pétur Ben]]: Guitar, String arrangement, vocals - [[Björgvin Gíslason]]: Sitar, Guitar - [[Gréta Guðnadóttir]]: Violin - [[Guðmundur Kristmundsson]]: Viola - [[Margrét Árnadóttir]]: Cello - [[Pálína Árnadóttir]]: Violin - [[Rúna Esradóttir]]: Whisper, Vocals - [[Sigurgeir Agnarsson]]: Cello - [[Una Sveinbjarnardóttir]]: Violin - [[Zbigniew Dubik]]: Violin - [[Þórarinn Már Baldursson]]: Viola - [[Einar Örn Benediktsson]]: Chat at the start - [[Helgi Hrafn Jónsson]]: Trombone - [[Pétur Hallgrímsson]]: Lapsteel, vocals - [[Óttar Sæmundsen]]: Double bass **CD cover design:** Mugison, [[Alli Metall]] **Illustration:** [[Kjartan Hallur]] **Endalausar ástarþakkir:** Rúna, Dýri og Eldar **lorrralove:** Papamug og Dóra, Mamma, Erla og Helga, Lilja og Haukur, Biggi Biggason og Gréta Bergs, Birta og Bergdís, Pétur Ben og Anna Kristín, Guðni Finns & Margrét Benediktsdóttir, Arnar Gíslason og Lára Rúnarsdóttir, Davíð Þór og Kjartan Hallur, Ásta og Daði, Guðni Már. **takk takk:** Dóri Hermanns fyrir innblásturinn að Sweetest Melody, Pétur Hallgríms, Bjöggi Gísla, Helgi Hrafn, Ragnar Kjartans og Ásdís, Raggi Braga & Helga Rós V. Hannam, Jerrod Wilkins, Dísa Esra og Einar, Erna og Stebbi, Esra og Carol, Jónas Val og Öddi, Una Sveinbjarnardóttir, Zbigniew Dubik, Pálína Árnadóttir, Gréta Guðnadóttir, Guðmundur Kristmundsson, Þórarinn Már Baldursson, Sigurgeir Agnarsson, Margrét Árnadóttir, Samuli Kosminen, Kalli frændi og fjölskylda, Snorri frændi, Hæi smiður, Pétur Magg smiður, Óskar í búðinni, Hálfdán og allt 911 gengið, Finni Spokk, Einar Örn, Pétur Grétars, Wikipedia. Janus og Tinna, Fjölskyldan á Sólbakka, Önni og fjölskylda, Einar Gústavsson, Jonni Sighvats, Gísli Darri og Bjarki, Alli Metall, Bjarni og Maggi hjá Apple, Hösky Höskulds, Maggi Hauks - besti veitingastaður á landinu, Kiddi og Siggi Hjálmar, Kippi Kanínus, Valgeir Sig, Ari Magg, Walter, Jónatan Garðars, Hjördís Halldórsdóttir, Magni vinur minn, Dagur, Rikki og Árni, Kjartan Kjartansson, Hemmi og allir á atóm01, Árni Matt, Eyþór Páll Hauksson og Oddi, Arnaldur Schram, Arnaldur Máni og fjölskylda, Rokklandsbræður, Allir tæknimenn á RÚV, Kári Esra og fjölskylda, Eiríkur Örn Norðdahl, Besti, Ajay Saggar, Jón Haukur, Huldar Breiðfjörð, Ari Alexander, Mara & Max de Wardener, Súðavíkurkirkja, Súðavíkurhreppur, Súðavíkur skóli, Grímur og Helga Vala í Bolungarvík, Kristján Freyr, Óttar Proppé, Kiddi og Eiður í Senu, 12 tóna klíkan, Smekkleysa, Balti og Agnes, Sigur Rósar klíkan, Múm klíkan, Trabant klíkan, Borkó, Kíra Kíra, Kári Sturla, Eva og Eldar, Matthew Herbert, John, Dani, Raf & Peppe, IPECAC gang, Robby Fraser, Mr. Plug & Hiko, Anderz & Stine, Bart Snoeren, Dirk Steenhaut, Jón Tyril, Julien Catala, Charlie Vetter the turtle, Delphine Legatt, Daniel Fontana, Pétur Magnússon, Anna Hildur og Dammaranir, John Kennedy, Jamie Cruisey, Emiliana, Nanna bókari, Hermann og Birna í Kaffi Kjós. Guðfinna M. Hreiðardóttir, Eyþór Páll Hauksson, Snorri Már Snorrason, Stebbi og Erna, Adam Curtis for the inspiration. Starfsfólk Odda.