![[01 Kletturinn.mp3]]
[Spotify](https://open.spotify.com/track/64c7B1XG9rXVPGo6bjyDQ8) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/1494114679?i=1494114690)
*Lag og texti: Mugison*
þeir kölluðu mig klett
en dropinn holar stein
nú sit ég einn á gangstétt
og man ei leiðina heim
tóbak og tjútt stytta þá leið
sú á er bæði djúp og breið
úr holdi er ég kominn
og mold skal verða
löngu aðframkominn
ónýtt til viðgerða
tóbak og tjútt stytta þá leið
sú á er bæði djúp og breið
ég á mér draum - bara ef þú spyrð
um að menn einsog ég renni ekki úr ábyrgð
einsog jarðskjálfti
sem bítur allt
tapaði öllu sem ég átti
sjálfum mér þúsundfalt
tóbak og tjútt stytta þá leið
sú á er bæði djúp og breið
ég á mér draum - bara ef þú spyrð
um að menn einsog ég renni ekki úr ábyrgð
hjálpaðu mér - þar sem ég stend
það æðsta er - alltaf - samkennd
----
**Kredit:**
- [[Arnar Þór Gíslason]]: Trommur
- [[Guðni Þórarinn Finnsson]]: Bassi
- [[Davíð Þór Jónsson]]: Píanó, Píanetta og Hammond
- [[Ómar Guðjónsson]]: Gítar
- [[Pétur Ben]]: Gítar
- [[Björgvin Gíslason]]: Gítarsóló
- [[Fólk/Mugison|Mugison]]: Gítar og söngur
----
[[Haglél (album)|← Haglél ←]]
[[02 - Stingum Af|→ Stingum Af →]]