![[03 Góðan Dag.mp3]]
[Spotify](https://open.spotify.com/track/3wVI09RVj63KM3TISn5ELg) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/1494114679?i=1494114887)
*Lag og texti: Mugison*
pakka liðinu inn, skófla morgunmatinn
hoppa af stað, enn einn dagurinn
á fleygiferð - smáútgerð
góðan dag.
dett í dagdrauminn - lóttó-vinninginn
svefndrukkinn - pappírshaugurinn
sullinn-bull - barnagull
góðan dag…
ég hef átt helvíti fínan dag í dag
ekkert stórkostlegt að
dag dag dag dag
held í mér andanum - fjandakornið
í leit af skerpunni - kaffidópið
útidúr - aukalúr
góðan dag, góðan dag
ég þarf að skipuleggja - skipulagið
í enn eitt sinn - álagið
en speisa út - les baggalút
góðan dag
ég hef átt helvíti fínan dag í dag
ekkert stórkostlegt að
dag dag dag dag
tungan þurr - er ég að veikjast
barnagrátur - hvað er að gerast?
hrekk í kút - fæ kvíðanút
góðan dag
týnd fjarstýring - ekkert virkar
kúvending - svangir múkkar
fæ pizzu og bjór - hugur sljór
góðan dag
----
**Kredit:**
- [[Arnar Þór Gíslason]]: Trommur
- [[Davíð Þór Jónsson]]: Píanó og Hammond
- [[Fólk/Mugison|Mugison]]: Gítar, bassi og söngur
----
[[02 - Stingum Af|← Stingum Af ←]]
[[04 - Þjóðarsálin|→ Þjóðarsálin →]]