![[07 Haglél.mp3]] [Spotify](https://open.spotify.com/track/3NhJwonE3qDEDRpSgvY4lk) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/1494114679?i=1494115221) *Lag og texti: Mugison* máninn skín inn um gluggann minn frostið kalt bítur morguninn á borðið sullast kaffitár í dag - liðin allmörg ár á gólfi liggur flugan dauð íbúðin angar ristað brauð ísskápur kurrar einsog tímavél einsog þá úti haglél kristur hangir á hálsmeni orðlaus yfir kyrrðinni ... að hann hætti að hugsa um sig og gefi mér aftur þig… á vegg er gulnuð brúðkaupsmynd innrömmuð ástin blind sendu draug þinn á kreik láttu hann liðast uppúr tóbaksreyk minningin færist fjær og fjær ástin er enn kristaltær síðan þú fórst hef ég setið hér og dagdreymt þig við hlið mér kristur hangir á hálsmeni orðlaus yfir kyrrðinni …að hann hætti að hugsa um sig og gefi mér aftur þig… *Lagið er tileinkað Þorsteini Sigurðssyni frá Flateyri.* ---- **Kredit:** - [[Fólk/Mugison|Mugison]]: Kassagítar og söngur - [[Davíð Þór Jónsson]]: Banjó - [[Rúna Esradóttir]]: Söngur ---- [[06 - Gúanó Stelpan|← Gúanó Stelpan ←]] [[08 - Stolin Stef|→ Stolin Stef →]]