![[myndir/Haglél umslag.jpg]] # Haglél (2011) September 2011. **Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/3pE68FgUNwXGn6xh4OKx04) · [iTunes](https://itunes.apple.com/us/album/hagl%C3%A9l/548034110) · [Soundcloud](https://soundcloud.com/mugison/sets/haglel) > [!note]- Pistill um plötuna > 2009 var ég búinn að túra Mugiboogie með nokkrum útgáfum af bandinu og búinn að vera of mikið í útlöndum frá því Dýri fæddist. Strákarnir þriggja og fjögurra ára. Mig langaði að eiga meiri tíma heima. Ég átti ekkert lag sem hafði slegið í gegn á íslensku – bara Ljósvíkinginn með [[Hjálmar|Hjálmum]]. Hugmyndin kviknaði í samviskubiti: gera plötu á íslensku og búa mér til grundvöll til að vinna heima. > > Manifestóið: eins lífræn og hægt væri, fókus á akústík. Spilverk þjóðanna, KK, Maggi Eiríks, Bjöggi Gísla, Bjartmar, Megas, KassagítarBubbi, Bjöggi Gísla – organískt íslenskt popp. Stingum af var heilt ár í fæðingu. Þegar það og Haglél voru komin fann ég að ég var með eitthvað í höndunum. Draumaplatan mín. Nú þurfti ég bara að leika mér. > > Ég var efins í nokkrar vikur heima í Súðavík – sívælandi í Rúnunni minni, búinn að gera allar útgáfur af sömu lögunum og óánægður með allt. Þá sagði Rúna: farðu í einangrun. Sumarbústaður, ekkert símasamband, engin börn, enginn banki. Eina reglan: þú mátt hringja í mig. Ég fékk lánaðan bústað í Húsafelli, í dæld þar sem maður þurfti að labba upp á hól til að ná sambandi. Setti tíu lítra pott af kjötsúpu og eldaði bara einu sinni. Borðaði kjötsúpu í hádeginu, seinni partinn og á nóttinni. Svaf þegar ég vildi sofa, vaknaði og vann. Eftir átta daga fór mér að leiðast súpan. Algjört bliss. > > Svo tók ég upp alla tónlistarmennina á hlaupum, á tveimur vikum. [[Davíð Þór Jónsson]] setti sinn galdur á alla plötuna. Ég náði honum aldrei í stúdíó, bara á ferðinni. Stingum af tókum við upp á hálftíma – hann vildi ekki heyra lagið fyrst, sagði *leyfðu mér að taka eitt teik án þess að heyra það*. Það er teikið sem er á plötunni. Gúanóstelpuna hitti ég hann fyrir slysni heima hjá mömmu hans og pabba, þar sem ég var að sækja sinnepskassa. Hann henti inn píanói úr stofunni, lúðrum sem mamma hans átti og banjó úr bílnum. Fjörutíu mínútur með kaffi og 50.000 bröndurum. Það rennur músík í blóði hans. Ég táraðist þegar ég hlustaði á upptökurnar heima. > > [[Ómar Guðjónsson]] var ég að vinna með í fyrsta sinn. Heill dagur heima hjá honum, algjör unun. Hann spilar í flestum lögunum og er, eins og Davíð, tengdur í eitthvað annað en við hin. Hvert einasta session var unaður. Ég sat á gullnámu. > > Samt var ég viss um að platan myndi ekki ganga. Of róleg, of sæt, of falleg, á skjön við tíðarandann sem var í gangi. En mér var sama – þetta var það besta sem ég hafði gert. Haglél kom út sem smáskífa um veturinn, ég flutti það í Kastljósinu og það sló í gegn. Stingum af kom um sumarið og tók yfir landið. Það passaði einhvern veginn eftir hrun, í hina áttina frá öllu. Það vildi ekki fara úr fyrsta sæti. Kletturinn um haustið, líka í fyrsta sæti. > > Ég föndraði diskinn sjálfur eins og alltaf. Hann rauk út. Byrjun nóvember var ég kominn með metsöluplötu. Þegar ég fékk borgað gat ég gert upp Mugiboogie-lánið sem hafði plagað mig í fjögur ár. Setti skuldabréfið í ramma upp á vegg, stimplað *uppgreitt*. Mig langaði að þakka fyrir mig – bókaði Hörpu, splunkunýja, og gaf þrenna tónleika. Það var eins og að blása á eld. Á endanum urðu eintökin 42.000. > > Nóvember og desember sagði ég já við öllu. Grunnskólar, fyrirtæki, tugir tónleika um allt land, oft á dag. Föndraði diska fram á nótt. Á jóladag sofnaði ég yfir matnum með hönd undir kjálkanum og hraut, strákarnir hoppandi af kæti, elsku Rúna búin að standa vaktina. Þvílík himnasending. > > Síðan þá hef ég getað unnið nær eingöngu heima á Íslandi. Þessi plata átti að vera lítið gæluverkefni. Hún varð stóra breikið mitt í lífinu. Ég Elska þig Haglél, takk. > [!note]- About the album in English > By 2009 I'd toured Mugiboogie with several versions of the band and been abroad too much since Dýri was born. The boys were three and four. I wanted more time at home. I had no song that had ever taken off in Icelandic – only Ljósvíkingur with [[Hjálmar]]. The idea came out of guilt: make an album in Icelandic and build myself a base to work from home. > > The manifesto: as organic as possible, focus on acoustic. The old Icelandic folk-pop heroes – Spilverk þjóðanna, KK, Megas, Bjartmar. Stingum af took a full year to be born. Once it and Haglél existed I knew I had something. My dream album. Now I just had to play. > > I had a few weeks of doubt at home in Súðavík – chewing Rúna's ear off, every version of every song made and unhappy with all of it. Then Rúna said: go into isolation. A summer cabin, no phone signal, no kids, no bank. One rule: you can call me. I borrowed a cabin in Húsafell, in a hollow where you had to walk up a hill to get signal. Made a ten-litre pot of lamb soup and cooked only once. Soup at noon, soup in the afternoon, soup at night. Slept when I wanted, woke and worked. After eight days I got tired of the soup. Total bliss. > > Then I recorded all the musicians on the run, in two weeks. [[Davíð Þór Jónsson]] put magic on the whole album. I never got him into a studio, only on the move. We recorded Stingum af in half an hour – he refused to hear the song first, said *let me do one take without hearing it*. That's the take on the record. Gúanó Stelpan I caught him by chance at his parents' house, where I was picking up a crate of mustard. He threw in piano from the living room, horns his mum owned and a banjo from the car. Forty minutes including coffee and 50,000 jokes. Music runs in his blood. I cried listening back at home. > > [[Ómar Guðjónsson]] I was working with for the first time. A whole day at his house, pure joy. He plays on most of the songs and is, like Davíð, plugged into something the rest of us aren't. Every session was a delight. I was sitting on a gold mine. > > Still, I was sure the album would flop. Too quiet, too sweet, too pretty, the wrong moment. But I didn't care – it was the best thing I'd made. Haglél came out as a single in winter, I played it on national TV and it took off. Stingum af came in summer and took over the country. Somehow it fit the mood after the financial crash, the opposite of everything. It wouldn't leave number one. Kletturinn in autumn, number one too. > > I hand-made the CD as always. It flew out. By early November I had a bestseller. When the shops paid I cleared the Mugiboogie loan that had haunted me for four years. Framed the bond, stamped *paid in full*, on the wall. I wanted to say thank you – booked Harpa, the brand-new concert hall, and gave three free shows. It was like blowing on a fire. In the end we made 42,000 copies. > > November and December I said yes to everything. Schools, offices, dozens of shows around the country, often several a day. Made CDs through the night. On Christmas Day I fell asleep over dinner with my hand under my jaw and snored, the boys bouncing with joy, my darling Rúna having held the fort. What a gift. > > Since then I've been able to work almost entirely at home in Iceland. This album was meant to be a little pet project. It became the big break of my life. Love Haglél, thank you. ## Lögin / Songs - [[01 - Kletturinn]] - [[02 - Stingum Af]] - [[03 - Góðan Dag]] - [[04 - Þjóðarsálin]] - [[05 - Áfall]] - [[06 - Gúanó Stelpan]] - [[07 - Haglél]] - [[08 - Stolin Stef]] - [[09 - Blindflug]] - [[10 - Ljósvíkingur]] - [[11 - Púkafæla]] --- ## Kredit **Tekið upp í Sundlauginni.** **Pródúserar:** - [[Birgir Jón Birgisson]]: Pródúser, upptaka, hljóðblöndun, mastering og prófarkalestur - [[Rúna Esradóttir]]: Pródúser og almennur stuðningur - [[Davíð Þór Jónsson]]: Pródúser og alltspilarinn **Hljóðfæraleikarar og söngvarar / Who played what:** - [[Davíð Þór Jónsson]]: Píanó, Píanetta, Hammond, Pínetta, Skemmtari, Mömmupíanó, slædbanjó, kjöltugítar, brass, Banjó, Pumpuorgel - [[Arnar Þór Gíslason]]: Trommur - [[Ómar Guðjónsson]]: Gítar, Slædbanjó - [[Guðni Þórarinn Finnsson]]: Bassi - [[Pétur Ben]]: Gítar - [[Rúna Esradóttir]]: Söngur - [[Kjartan Hákonarson]]: Trompet - [[Tómas R. Einarsson]]: Kontrabassi - [[Björgvin Gíslason]]: Gítarsóló - [[Pétur Grétarsson]]: Bassatromma **Umbúðir, krot og útlit:** [[Alli Metall]] · Jónas Val ([jonasval.com](http://jonasval.com)) · Mugison · Rúna · Erla María **Þakkir:** Rúna, Dýri og Eldar takk fyrir allt allt allt. Mamma og Smári, Pabbi og Dóra. Lilja og Haukur. Afi og Amma. Addi, Guðni, Pétur, Davíð Þór, Tómas R, Bjöggi Gísla, Kjartan. Sjúklegar þakkir fá eyrun hans Bigga. Pétur Ben fyrir endalausan innblástur, Anna Kristín og Gréta Bergs. Erla og Helga, Ásta, Janus og Tinna, Daði, Alli Metall, Jónas Val og Erla María, Jenný Magnúsdóttir og Jón Þórir Leifsson takk fyrir lánið á píanóinu, Kjartan Hallur, Davíð Más fyrir lán á Húsafelli og kossar á allt HD-klanið, Alli og Mumma fyrir sveitasæluna. Eggert og Michelle Nielson. Yordan, Súðavík, Óskar í Kaupfélaginu, 3X-stál, Aldrei Fór ég suður klíkan, Herbert og Matthew Herbert, John, Raf, Palli Einars og fjölskylda, Geiri 911, Hjálmar, Didda hans Bjögga, Tómas Frændi, Balli Kimi, Gaukur og Jón Þór, Kristinn hjá Senu, Önni og Venni, Örn, Jón Trausti og allir hjá Odda... *þakka þér kærlega fyrir að kaupa plötuna mína ... takk takk takk*