![[myndir/Enjoy! umslag.jpg]]
# Enjoy! (2016)
Nóvember 2016.
**Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/1S2QTpPkJQkmDYAEOWz9uh) · [iTunes](https://itunes.apple.com/us/album/enjoy/1171185695) · [Soundcloud](https://soundcloud.com/mugison/sets/enjoy-1)
> [!note]- Pistill um plötuna
> 2013 stofnuðum við [[Ómar Guðjónsson|Ómar Guðjóns]], [[Jónas Sig]] og ég hljómsveitina Dranga, gerðum plötu og túruðum. Það var ekki fyrr en 2014 að ég sá fyrir mér hvernig Enjoy! gæti orðið. Ég var hugfanginn af jaðarsettri heimstónlist – indverskri, tælensku 70s-fönki, afró, kínverskri, suður-amerískri. Því verri hljómgæði, því betra. Surfaði á YouTube endalaust og bjó til playlista. Það er grunnurinn að þessari plötu.
>
> Þetta er dýpsta plata sem ég hef gert. Ég hef aldrei vandað mig jafn mikið og aldrei gert fleiri útgáfur af sömu lögunum. Mér fannst öll lögin vera það besta sem ég gat og ég væri að taka mitt stærsta stökk sem lagahöfundur. Who Would I Be Holding Tight, Pissing in the Wind, Climbing Up a Dream, Deliver – epic lög. Please, I'm a Wolf og Hangover komu úr rokkabillí-púkanum sem býr alltaf í mér. Og Tipsy King er mest unna lag sem ég hef gert: layer eftir layer, eins og marglaga kaka. Tók upp bakraddir, spilaði þær í gegnum hátalara, setti inn á Octatrack, ruglaði í þeim, pitchaði, aftur inn í trakkið. Tók upp hverja einustu nótu á kassagítarinn svo hann hljómaði eins og ónýtur pedal steel. Vikur af vinnu, eins og vísindamaður að leita að draug til að rannsaka.
>
> Á túr með Of Monsters and Men í Belgíu settist maður hjá mér á bar: [[Pieter Theuns]], með barokkhóp sem heitir B.O.X. Hann hafði séð mig árum áður sem raftrúbador og vildi vinna með mér. Nokkrum árum seinna fékk hann styrk og við bjuggum til *Loom of Mind* – [[Pétur Ben]] tók lögin mín og útsetti fyrir barokkhljómsveit: Deliver, Tipsy King, Hangover, Pissing in the Wind, Lazing On. Við spiluðum á fimm stöðum í Benelux. Ég tók það upp í stúdíói og endurnýtti helling af þeim upptökum á plötunni.
>
> Sumarið 2016 spilaði ég fjögur, fimm kvöld í viku í Kassanum í Þjóðleikhúsinu – best-of fyrir túrista. Rétt stóð undir sér, en gaman. Og þar sofnaði ég á gólfinu á meðan ég beið eftir gestum. Tvisvar, þrisvar, fjórum sinnum á dag. Ég var búinn að finna í nokkur ár að eitthvað var að, í líkamanum og andlega. Innst inni var ég viss um að ég væri að verða geðveikur, eða kominn með krabbamein. Of hræddur til að fara til læknis. Eins og laminn hundur – dró mig í hlé og lék leikrit þess sem veit að heimurinn er að hrynja. En ljósið slokknaði aldrei: Rúna og strákarnir, og að búa til.
>
> Það var skjaldkirtillinn. Vanvirkur, í ólestri árum saman – vitavörðurinn sem segir líkamanum hvenær hann á að vaka og sofa. Keypti mér inn á einkalæknastofu um mitt sumar og þetta kom strax í ljós. Byrjaði á lyfjum og fann kraft til að klára plötuna. Hætti að drekka, hætti að reykja. Trikkið til að hætta að reykja var að fá mér hund: Skuggi, standard schnauzer, þýskur Excel-skjalameistari með allt upp á tíu, ofvirkur, snilld. Keyrði vestur með hundinn í ágúst og kláraði plötuna.
>
> Þetta ástand fór í lögin. Who Would I Be Holding Tight: ég er hræddur við dauðann, ég er hræddur við lífið. Það sést desperation í Pissing in the Wind, Tipsy King, Hangover, Climbing Up a Dream. Þungt en geggjað stöff.
>
> [[Þorbjörn Sigurðsson|Tobbi Sig]] kom í bandið 2011 og leysti af hólmi Davíð Þór, Pétur Ben og Ómar – þrír menn í einum. Ég var búinn að taka Who Would I Be Holding Tight upp ótal sinnum, aldrei sáttur. Fékk Tobba í Sundlaugina í tvo daga og hann spilaði á öll hljóðfærin þar: mellotron, synþa, Rhodes, Farfisa, píanó, eins og leikur einn. Svo raddaði hann eins og engill – ég vildi Bítlaraddir og hann rúllaði þeim upp. Lagið lifnaði við.
>
> Lazing On og I'm a Wolf slógu í gegn, hin fóru ekki á flug, en mér þykir vænt um þau öll. Takk [[Pétur Ben]] fyrir útsetningar og stuðning, barokkleikararnir í Belgíu, [[Davíð Þór Jónsson]], [[Arnar Þór Gíslason|Addi]] og [[Guðni Þórarinn Finnsson|Guðni]]. Ég er brjálæðislega stoltur af þessari plötu.
> [!note]- About the album in English
> In 2013 [[Ómar Guðjónsson|Ómar]], [[Jónas Sig]] and I started a band called Drangar, made a record and toured. It wasn't until 2014 that I could picture what Enjoy! might be. I was obsessed with obscure world music – Indian, Thai 70s funk, Afro, Chinese, South American. The worse the sound quality, the better. Endless YouTube surfing, making playlists. That's the foundation of this album.
>
> It's the deepest record I've made. I've never been so careful and never made so many versions of the same songs. Every song felt like the best I could do and my biggest leap as a songwriter. Who Would I Be Holding Tight, Pissing in the Wind, Climbing Up a Dream, Deliver – epic songs. Please, I'm a Wolf and Hangover came from the rockabilly imp that always lives in me. And Tipsy King is the most worked-on song I've ever made: layer upon layer, like a layer cake. Recorded backing vocals, played them through speakers, onto the Octatrack, messed with them, pitched them, back into the track. Recorded every single note on the acoustic so it would sound like a broken pedal steel. Weeks of work, like a scientist hunting an animal that's never been found.
>
> On tour with Of Monsters and Men in Belgium a man sat down next to me at a bar: [[Pieter Theuns]], who had a baroque ensemble called B.O.X. He'd seen me years earlier as an electronic troubadour and wanted to work together. A few years later he got funding and we made *Loom of Mind* – [[Pétur Ben]] took my songs and arranged them for baroque orchestra: Deliver, Tipsy King, Hangover, Pissing in the Wind, Lazing On. We played five shows in Benelux. I recorded it in a studio and reused a lot of those recordings on the album.
>
> In summer 2016 I played four or five nights a week at the National Theatre's small stage – a best-of for tourists. Just about broke even, but fun. And that's where I fell asleep on the floor while waiting for the audience. Two, three, four times a day. For years I'd felt something was wrong, in my body and my head. Deep down I was sure I was going mad, or had cancer. Too scared to see a doctor. Like a beaten dog – I withdrew and played the part of a man who knows the world is ending. But the light never went out: Rúna and the boys, and making things.
>
> It was my thyroid. Underactive, out of order for years – the lighthouse keeper that tells the body when to wake and sleep. Paid for a private clinic mid-summer and it showed up immediately. Started medication and found the strength to finish the album. Quit drinking, quit smoking. My trick for quitting smoking was getting a dog: Skuggi, a standard schnauzer, German spreadsheet-master with everything turned up to ten, hyperactive, brilliant. Drove west with the dog in August and finished the record.
>
> That state got into the songs. Who Would I Be Holding Tight: I'm afraid of death, I'm afraid of life. You can hear the desperation in Pissing in the Wind, Tipsy King, Hangover, Climbing Up a Dream. Heavy but brilliant stuff.
>
> [[Þorbjörn Sigurðsson|Tobbi Sig]] joined the band in 2011 and replaced Davíð Þór, Pétur Ben and Ómar – three men in one. I'd recorded Who Would I Be Holding Tight countless times, never happy. Got Tobbi into Sundlaugin for two days and he played every instrument in the building: mellotron, synths, Rhodes, Farfisa, piano, like it was nothing. Then he sang harmonies like an angel – I wanted Beatles vocals and he rolled them out. The song came alive.
>
> Lazing On and I'm a Wolf took off, the others didn't, but I love them all. Thank you [[Pétur Ben]] for the arrangements and support, the baroque players in Belgium, [[Davíð Þór Jónsson]], [[Arnar Þór Gíslason|Addi]] and [[Guðni Þórarinn Finnsson|Guðni]]. I'm insanely proud of this record.
## Lögin / Songs
- [[01 - Deliver]]
- [[02 - Please]]
- [[03 - Who would I be holding tight]]
- [[04 - Tipsy King]]
- [[05 - Hangover]]
- [[06 - Pissing in the wind]]
- [[07 - I'm a wolf]]
- [[08 - Climbing up a dream]]
- [[09 - Lazing on]]
---
## Kredit
**Songs and lyrics:** Mugison
Stærstu mögulegu þakkir til Rúnu, Eldars og Dýra.
**Hljóðfæraleikarar og söngvarar / Who played what:**
- [[Davíð Þór Jónsson]]: Hammond, Piano, Farfisa, Bass, Rhodes, Harpsichord, Mellotron
- [[Pétur Ben]]: Bass, Box Arrangements, Guitar
- [[Bart Vroomen]]: Baroque Trombone
- [[Borgar Magnason]]: Double Bass
- [[Jon Birdsong]]: Cornetto, Trumpet
- [[Jutta Troch]]: Baroque Harp
- [[Lambert Colson]]: Cornetto
- [[Liam Byrne]]: Viola da Gamba, Lyrone
- [[Magnús Trygvason Eliassen]]: Drums, Percussion
- [[Mattijs Vanderleen]]: Drums, Percussion
- [[Pieter Theuns]]: Theorbo, BOX Leader
- [[Pieter Vandeveire]]: Viola da Gamba, Soprano Gamba
- [[Guðmundur Pétursson]]: Guitar
- [[Frank Aarnink]]: Percussion, Washboard, Sner
- [[Guðni Þórarinn Finnsson]]: Bass
- [[Ómar Guðjónsson]]: Bass, Guitar
- [[Óskar Guðjónsson]]: Saxophone, Clarinett
- [[Þorleifur Gaukur Davíðsson]]: Harmonica
- [[Arnar Þór Gíslason]]: Drums
- [[Ingi Garðar Erlendsson]]: Trombone
- [[Rósa Guðrún Sveinsdóttir]]: Saxophone
- [[Sigurður Halldórsson]]: Langspil, Cello
- [[Þorbjörn Sigurðsson]]: Piano, Harpsichord, Synths, Mellotron, Harmonium, singing
- [[Gunnar Ben]]: EWI
- [[Rúna Esradóttir]]: Singing
**Recorded at:**
Most things recorded at the Sundlaugin in Iceland ([www.sundlaugin.com](http://www.sundlaugin.com/)) and engineered by [[Birgir Jón Birgisson]].
The B.O.X. was recorded in the amazing Motor Music in Mechelen, Belgium. Thomas De Pauw Engineer and Floren Van Stichel was the assistance engineer.
**Artwork:** [[Alli Metall]]