![[myndir/É Dúdda Mía umslag.jpg]] # É Dúdda Mía (2023) September 2023. **Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/7bOcKRTf86nDdYqkkzVkOJ) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/%C3%A9-d%C3%BAdda-m%C3%ADa/1707555932) > [!note]- Pistill um plötuna > 2017 keypti ég Sprinter. Draumurinn: camper van og fjölskyldan á túr um allt land. Ég bókaði 56 staði og við keyrðum 40.000 kílómetra. Sólin er komin varð til þegar allt lék í lyndi í bílnum. Himnasælan entist í tvær vikur. Næstu sex vikur stigmagnaðist óánægjan þar til við urðum að senda strákana heim til ömmu í Súðavík. > > 2019 kom Sólin er komin út og sló í gegn. Annar sumarhringur – strákarnir ekki píndir með. Ég flutti frumútgáfu af Kossaflóð í beinni á Stöð 2, ástarlag um fyrsta kvöldið með Rúnu. Ég átti eftir að henda laginu og nærri öllum textanum. Sama ár fórum við [[Ragnar Bragason]] til Póllands í mánuð og tókum upp Gullregn með pólsku útvarpshljómsveitinni. Gullregn kom í bíó í brjáluðu veðri og varað við mannaferðum. Nokkrum dögum seinna skall Covid á. Myndin átti aldrei séns. En geggjuð bíómynd og ég mjög ánægður með tónlistina – tvö lög úr henni enduðu á plötunni. > > Í Covid fluttum við inn á Ísafjörð, í Krambúðina, eldgamalt og fallegt hús á safnasvæðinu. Þar leið okkur vel en ég fann enga músík í þessu húsi, ekki eina nótu. Prófaði öll herbergin, uppi, niðri, nokkrar vikur í senn. Fékk lánaðan skúr út í garð – of kaldur, rafmagnsofn, þurrt loft, nefið þurrt, ekki hægt að syngja. > > 2021 fór ég á bílnum út um allt. Bíllinn var orðinn stórkostlegur camper eftir margar vinnulotur vina og vandamanna. Samdi meðal annars í fjörunni í Bolungarvík, á skíðasvæðinu á Ísafirði, á Langeyri og Arnarnesi – þar sem enginn náði í mig. Þá loksins fór þetta á flug: Hugsa til þín, Gúanó Kallinn, Stóra Stóra Ást, Haustdansinn, É Dúdda Mía, Kossaflóð. > > 2022 var ég í Sundlauginni með [[Cauda Collective]] – þær höfðu gert tíu ára afmælistónleika Hagléls og ég vissi að ég yrði að vinna með þeim. Í einu sessioni mætti félagi minn ekki – misskildi dagsetninguna, var uppi á fjöllum að veiða. Á meðan ég beið fór ég á netið og sá hús til sölu: Fellshlíð í Mosó. Snemma í Covid, þegar heimurinn var að farast, höfðum við Rúna rúntað á Google Maps og fundið götuna þar sem best væri að búa ef við þyrftum suður. Þessa götu. Við Biggi brunuðum upp eftir og ég varð ástfanginn, aukaslög í hjartað. Hringdi í Rúnu: *það er núna eða aldrei.* Hún sagði: *Ástin mín, ég treysti þér, kauptu þetta bara og búum okkur til lítið hreiður í bænum.* > > Ég seldi bílinn fyrir útborguninni. Þakið lak, útveggirnir líka. Ég þurfti að spila. Einhver hafði kvartað á Facebook: *af hverju ertu aldrei með kósý litla tónleika í Reykjavík?* Þá kom hugmyndin: öll póstnúmer á höfuðborgarsvæðinu. Ég hringdi í [[Kristofer Rodríguez Svönuson]] – trommara og slagverksleikara í einum manni – og bað hann um greiða – að koma og spila með mér á milljón. Hann sagði já. Úr því eignaðist ég einn af mínum allra bestu vinum. Hann tók plötuna í fóstur, opnaði fyrir mér latínheiminn, næmnina, dýnamíkina. Við spiluðum eins og brjálæðingar fyrir lagfæringum á húsinu og unnum plötuna í leiðinni. > > Í Fellshlíð fannst mér vera til endalaust af músík. Þar kláruðust lögin. Þar vann ég í fyrsta sinn með [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgi Steini]] á kontrabassa, og góðkunningjar frá öllum tímabilum komu við sögu. Þemað: hefðbundið form, minni alvara en á Enjoy!, grallarafílingur, ófeiminn við einfaldan strúktúr. Svo túruðum við Kristófer plötuna – rúmlega hundrað tónleikar, bara tveir. Eftir það var ég breyttur maður – hann kenndi mér svo margt, bæði um lífið og músík. > [!note]- About the album in English > In 2017 I bought a Sprinter van. The dream: a camper and the family on tour around the whole country. I booked 56 shows and we drove 40,000 kilometres. Sólin er komin was written when everything was blissful in the van. The bliss lasted two weeks. Over the next six, the misery escalated until we had to send the boys home to their grandmother. > > In 2019 Sólin er komin came out and took off. Another summer lap – without torturing the boys. I played an early version of Kossaflóð live on TV, a love song about the first night I met Rúna. I'd go on to throw away the song and nearly all the lyrics. That year [[Ragnar Bragason]] and I spent a month in Poland recording the Gullregn film score with the Polish radio orchestra. Gullregn opened in cinemas in a storm, with the public warned to stay indoors. A few days later Covid hit. The film never stood a chance. But a great film, and I'm very happy with the music – two pieces from it ended up on the album. > > During Covid we moved into Ísafjörður, into Krambúðin, an ancient beautiful house in the museum quarter. We were happy there, but I found no music in that house, not a single note. Tried every room, upstairs, downstairs, weeks at a time. Borrowed a shed for the garden – too cold, electric heater, dry air, dry nose, no singing. > > In 2021 I took the van all over the place. By then it was a magnificent camper after many work sessions by friends and family. I wrote on the beach in Bolungarvík, at the ski area in Ísafjörður, at Langeyri and Arnarnes – where nobody could reach me. Finally it took off: Hugsa til þín, Gúanó Kallinn, Stóra Stóra Ást, Haustdansinn, É Dúdda Mía, Kossaflóð. > > In 2022 I was in Sundlaugin studio with [[Cauda Collective]] – they'd done the Haglél tenth-anniversary concerts and I knew I had to work with them. At one session a friend didn't show – got the date wrong, was up in the mountains hunting. While waiting I went online and saw a house for sale: Fellshlíð in Mosfellsbær. Early in Covid, when the world was ending, Rúna and I had cruised Google Maps and found the street where we'd want to live if we had to move south. This street. Biggi and I raced up there and I fell in love, heart skipping. Called Rúna: *it's now or never.* She said: *My love, I trust you, just buy it and let's make a little nest in town.* > > I sold the van for the deposit. The roof leaked, so did the walls. I had to play. Someone had complained on Facebook: *why do you never do cosy little shows in Reykjavík?* So the idea: every postcode in the capital area. I called [[Kristofer Rodríguez Svönuson]] – a drummer and a percussionist in one – and asked a favour – to come and play with me like crazy. He said yes. He became one of my very best friends. He took the album under his wing, opened up the Latin world for me, the sensitivity, the dynamics. We played like madmen to pay for the repairs and made the album on the way. > > In Fellshlíð there seemed to be endless music. That's where the songs got finished. There I worked for the first time with [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] on double bass, and old friends from every era came through. The theme: traditional form, less serious after Enjoy!, a prankster spirit, unafraid of simple structure. Then Kristófer and I toured it – over a hundred shows, just the two of us. After that I was a changed man – he taught me so much, about life and about enjoying playing music for people. ## Lögin / Songs - [[01 - É Dúdda Mía]] - [[02 - Kossaflóð]] - [[03 - Hugsa Til Þín]] - [[04 - Sólin Er Komin]] - [[05 - Álfurinn í Bollanum]] - [[06 - Gúanó Kallinn]] - [[07 - Stóra Stóra Ást]] - [[08 - Haustdansinn]] - [[09 - Indíana Upphafstitlar]] --- ## Kredit **Lög og textar:** Mugison **Pródúserar:** [[Kristofer Rodríguez Svönuson]], [[Rúna Esradóttir]], [[Birgir Jón Birgisson]], [[Þórdís Gerður Jónsdóttir]], [[Þóra Margrét Sveinsdóttir]], [[Þorleifur Gaukur Davíðsson]], [[Sigrún Harðardóttir]], [[Ómar Guðjónsson]], [[Pétur Ben]], [[Dýri Arnarson]], [[Allan Sigurðsson]], [[Stefán Björnsson Önundarson]], [[Ragnar Bragason]], [[Hafþór Karlsson Tempó]] — sjá lagasíður fyrir hvert lag **Upptaka, mix og mastering:** [[Birgir Jón Birgisson]] · strengir, flauta og klarinetta: [[Hafþór Karlsson Tempó]] **Hljóðfæraleikarar og söngvarar / Who played what:** - [[Birgir Jón Birgisson]]: Pródúser, Mix, Mastering, Upptaka - [[Kristofer Rodríguez Svönuson]]: Trommur, Slagverk, Pródúser - [[Rúna Esradóttir]]: Pródúser, Bakrödd - [[Sigrún Harðardóttir]]: Fiðla, Pródúser, Strengjaútsetning, söngur - [[Þorleifur Gaukur Davíðsson]]: Mandólín, Pródúser, Pedal Steel, Munnharpa - [[Þóra Margrét Sveinsdóttir]]: Víóla, Strengja- og flautuútsetning, Pródúser, söngur - [[Þórdís Gerður Jónsdóttir]]: Selló, Strengja-, klarinettu- og flautuútsetning, Pródúser, söngur - [[Pétur Ben]]: Klassískur gítar, Rafgítar, Rafslagharpa, Nælongítar, Upptaka, Pródúser - [[Ómar Guðjónsson]]: Rafgítar, Kassagítar, Bakraddir, Pródúser, Píanó - [[Baldvin Hlynsson]]: Hljómborð, Hljóðgerflar, Píanó, Rhodes - [[Hafþór Karlsson Tempó]]: Upptaka og mix á strengjum, þverflautu og klarinettu, Pródúser - [[Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson]]: Bassi, Pródúser, Kontrabassi - [[Dýri Arnarson]]: Pródúser - [[Grímur Helgason]]: Klarinetta - [[Ragnar Bragason]]: Pródúser - [[Sinfonia Viva]]: Flytjandi - [[Ásgeir Ásgeirsson]]: Setar frá Íran, Tanboura - [[Úlfur Eldjárn]]: Útsetning - [[Alexandra Kjeld]]: Bakrödd - [[Allan Sigurðsson]]: Pródúser - [[Arnar Þór Gíslason]]: Slagverk - [[Birgir Steinn Theodórsson]]: Kontrabassi - [[Björgvin Gíslason]]: Gítarsóló - [[Davíð Þór Jónsson]]: Píanó, Farfísa - [[Guðmundur Pétursson]]: Selmer Gítar - [[Helgi Svavar Helgason]]: Trommur, Pródúser - [[Jóel Pálsson]]: Klarinetta - [[Matthías Hemstock]]: Trommur - [[Rósa Guðrún Sveinsdóttir]]: Bakraddir - [[Sigríður Thorlacius]]: Bakrödd - [[Stefán Björnsson Önundarson]]: Pródúser - [[Steinunn Vala Pálsdóttir]]: Þverflauta - [[Óskar Guðjónsson]]: Saxafónn - [[Þorbjörn Sigurðsson]]: Bakraddir, Rafgítar **Umslag:** Dagur Bærings Bjarnason %% vantar: þakkir, hvar tekið upp (Sundlaugin + Fellshlíð skv. pistli) – Mugison fyllir %%