![[08 Haustdansinn.mp3]]
[Spotify](https://open.spotify.com/track/1nJv1LW30pzMZREd8vhaG8) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/1707555932?i=1707556484)
*Lag og texti: Mugison*
> [!note]- Um lagið
> Hugmyndin kom á göngutúr með hundinum í Súðavík þegar haustlaufin fuku um í sínum tryllta dansi. Ég sá félagsheimilið fyrir mér og laufblöðin sem nútímadansara, en náði því ekki í orð. Nokkrar útgáfur, aldrei rétt. Svo sat ég í bílnum á Þingvöllum í fjóra daga um haust, horfði út um gluggann á fuglana og laufin – og þá skrifaði lagið sig sjálft.
> [!note]- About the song in English
> The idea came walking the dog in Súðavík as the autumn leaves whirled in their mad dance. I pictured the village hall, the leaves as modern dancers, but couldn't find the words. Several versions, never right. Then I sat in the van at Þingvellir for four days one autumn, looking out the window at the birds and the leaves – and the song wrote itself.
Rauðbrún, gul, grá, svört og bleik
laufin fjúka um á haustdansleik
þau stökkva, snúast, algjörlega í takt
hvert svif og fall er þræl-skipulagt
Ölvaðir þrestir eru að rífa kjaft
fljúgast á og drekka berjasaft
Kjarrið brakar og hvíslar ofurhljótt
vangaðu við mig í alla nótt
Ó að sleppa, sleppa, sleppa alveg takinu
og að dansa, að dansa, já að dansa
eins og glóð í myrkrinu
Vindurinn ögrar og kitlar þrútið nef
segir að dans allra dansa sé hænuskref
Regnið trommar von í brjóstin þreytt
að saman við þurfum ekki að hræðast neitt
----
**Kredit:**
- [[Sigrún Harðardóttir]]: Pródúser, Strengjaútsetning, Fiðla og söngur
- [[Pétur Ben]]: Nælongítar, Upptaka, Pródúser
- [[Kristofer Rodríguez Svönuson]]: Pródúser, Slagverk og Trommur
- [[Rúna Esradóttir]]: Pródúser
- [[Þórdís Gerður Jónsdóttir]]: Selló og söngur
- [[Þóra Margrét Sveinsdóttir]]: Víóla og söngur
- [[Ásgeir Ásgeirsson]]: Tanboura
- [[Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson]]: Kontrabassi
- [[Óskar Guðjónsson]]: Saxafónn
- [[Hafþór Karlsson Tempó]]: Pródúser, upptaka og mix á strengjum
- [[Birgir Jón Birgisson]]: Pródúser, Mix og Mastering
----
[[07 - Stóra Stóra Ást|← Stóra Stóra Ást ←]]
[[09 - Indíana Upphafstitlar|→ Indíana Upphafstitlar →]]