![[myndir/Ítrekun umslag.jpg]] # Ítrekun / Reminder (2009) **Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/2cnWd6o1TR8mOdhPUogIvP) · [iTunes](https://music.apple.com/us/album/1445713984) ## Um plötuna / About the album > [!note]- Pistill um plötuna > Mugiboogie-bandið var búið að túra í eitt og hálft ár, ekkert smá – með Queens of the Stone Age, um Kanada, um alla Evrópu. Í rúmt ár vorum það ég, [[Arnar Þór Gíslason|Addi]], [[Guðni Þórarinn Finnsson|Guðni]], [[Pétur Ben]], [[Davíð Þór Jónsson|Davíð Þór]] og [[Birgir Jón Birgisson|Biggi]], alltaf með sem hljóðmaður. Felix Grimm, þáverandi tónleikabókari, keyrði okkur mikið, og Ásgeir Andri keyrði okkur góðan Evrópuhring. > > Geggjað tímabil. Ungir menn með endalausa orku, 190% í öll sjó. Mikið hlegið, mikið djammað, lífið algjört rugl – ævintýri á landamærum og flugvöllum. Ótrúleg lífsreynsla að keyra frá einu bílastæði yfir á annað í mörgum af merkilegustu borgum heims og ná varla að kynna sér nokkurn skapaðan hlut. Svolítið eins og að vera um borð í trillu: kallalykt og sviti, menn með sín verkfæri að gera sitt besta. > > Við vorum orðnir eins og einn maður. Mér fannst við eiga að taka eitt live-session í Sundlauginni, eiga smá dókúment – sérstaklega af lögunum sem höfðu stökkbreyst á ferðalaginu. Það heyrist glöggt í Murr Murr: úr kassagítarlagi í algjört dauðarokk. Pathetic Anthem, Go Blind og I'm On Fire í geggjaðri útgáfu – níu mínútur eða eitthvað. I'm Alright falleg endurgerð, og Poke A Pal líka. Fókusinn var á það sem hafði breyst á túrnum. > > Ég vakti enga athygli á þessari plötu, gaf hana bara út. Hún er til, hún er heiðarleg og fangar bandið á þessum tímapunkti. Í kjölfarið hættu Davíð og Pétur, fóru í sín verkefni, og inn komu [[Þorbjörn Sigurðsson|Tobbi]] og [[Rósa Guðrún Sveinsdóttir|Rósa]]. > > Í mínum huga er Ítrekun hluti af Mugiboogie. Ef ég gæfi þær út á vínyl myndi ég alltaf gefa þær út saman. > [!note]- About the album in English > The Mugiboogie band had been touring for a year and a half, and not a little – with Queens of the Stone Age, across Canada, all over Europe. For over a year it was me, [[Arnar Þór Gíslason|Addi]], [[Guðni Þórarinn Finnsson|Guðni]], [[Pétur Ben]], [[Davíð Þór Jónsson|Davíð Þór]] and [[Birgir Jón Birgisson|Biggi]], always along as sound engineer. Felix Grimm, our booking agent at the time, drove us a lot, and Ásgeir Andri drove us a good lap of Europe. > > A brilliant time. Young men with endless energy, giving 190% to every show. Lots of laughter, lots of partying, life a complete mess – adventures at borders and airports. A strange experience to drive from one car park to another in some of the greatest cities in the world and barely get to see a thing. A bit like being aboard a small fishing boat: the smell of men and sweat, everyone with their tools doing their best. > > We had become one organism. I felt we should do a live session at Sundlaugin, keep a little document – especially of the songs that had mutated on the road. You can hear it clearly in Murr Murr: from an acoustic song to full-on death metal. Pathetic Anthem, Go Blind and I'm On Fire in a wild version – nine minutes or something. I'm Alright beautifully remade, and Poke A Pal too. The focus was on what had changed on tour. > > I made no fuss about this record, just put it out. It exists, it's honest, and it captures the band at that moment. Afterwards Davíð and Pétur left for their own projects, and in came [[Þorbjörn Sigurðsson|Tobbi]] and [[Rósa Guðrún Sveinsdóttir|Rósa]]. > > To me Ítrekun is part of Mugiboogie. If I ever put them out on vinyl I'd release them together. Tekið upp í Sundlauginni, jan 2009. Mug 007. Gefin út nóv 2009. Eldri lög í nýjum útgáfum. ![[myndir/Ítrekun diskur.jpg]] ## Lögin / Songs | # | Lag | Upprunalega af | |---|---|---| | 1 | The Pathetic Anthem | [[02 - The Pathetic Anthem (demo)\|Mugiboogie]] (2007) | | 2 | Murr Murr | [[09 - Murr Murr\|Mugimama]] (2004) | | 3 | Poke A Pal | [[08 - Poke A Pal\|Lonely Mountain]] (2003) | | 4 | Jesus Is A Good Name To Moan | [[04 - Jesus is a good name to moan\|Mugiboogie]] (2007) | | 5 | I'm Alright | [[07 - I'm alright\|Mugiboogie]] (2007) | | 6 | I Want You | [[01 - I Want You\|Mugimama]] (2004) | | 7 | Go Blind | [[2005 Little Trip|Little Trip]] (2005) | | 8 | I'm On Fire | [[04 - I'm On Fire\|Lonely Mountain]] (2003) | | 9 | To The Bone | [[03 - To the Bone\|Mugiboogie]] (2007) | Textarnir eru á upprunalegu lagasíðunum. --- ## Kredit - [[Arnar Þór Gíslason]]: Trommur - [[Guðni Þórarinn Finnsson]]: Bassi - [[Davíð Þór Jónsson]]: Hljómborð - [[Pétur Ben]]: Gítar - [[Fólk/Mugison|Mugison]]: Söngur og gítar **To The Bone** (lag 9): bara [[Davíð Þór Jónsson]] og [[Fólk/Mugison|Mugison]]. **Tekið upp í** Sundlauginni af [[Birgir Jón Birgisson]].