![[myndir/Sólin er komin umslag.jpg]]
# Sólin er komin (2019)
Maí 2019.
![[Sólin er komin.m4a]]
*Singull. Fyrsta útgáfa lagsins — kom út 24. maí 2019.*
**Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/74yNGCN3t0E8bT83b1ECYp) · [Apple Music](https://music.apple.com/is/album/s%C3%B3lin-er-komin-single/1465777095)
## Um lagið / About the song
- **Lifandi útgáfa** — tríó: Mugison, [[Ómar Guðjónsson]] og [[Valdimar Olgeirsson]]
> [!note]- Um lagið
> Lagið varð til á fjölskylduferðalagi sumarið 2017. Túrisminn var kominn sterkur inn og okkur fannst við vera gestir í eigin landi – svo við snerum bara sólarhringnum við. Það er hvort eð er bjart á nóttunni. Þá áttum við þjóðarperlurnar ein: Ásbyrgi, Hljóðakletta og svo framvegis, um miðja nótt. Sváfum fram yfir hádegi og fórum í sund þegar enginn var í sundi, af því að allir hinir voru að skoða náttúruperlurnar.
>
> Erindin og meginlaglínan urðu til á þessu ferðalagi. Hluti af viðlaginu kom úti á bryggju á Akureyri – þangað er mjög gott að fara með gítar og horfa út Eyjafjörðinn. Ég átti að spila á Græna hattinum um kvöldið og vildi nota tímann. Þá lá þetta bara beint við: *sólin er komin og hún hleður mig.*
>
> Ég að spila á kvöldin, við að skoða landið á nóttunni. Yndislegt sumar. Geggjað.
> [!note]- About the song in English
> The song was born on a family road trip in the summer of 2017. Tourism had arrived in force and we felt like guests in our own country – so we simply turned the clock around. It's light at night anyway. Then we had the national treasures to ourselves: Ásbyrgi, Hljóðaklettar and the rest, in the middle of the night. Slept past noon and went to the pool when nobody was there, because everyone else was out looking at the sights.
>
> The verses and the main melody came on that trip. Part of the chorus arrived out on the pier in Akureyri – a very good place to sit with a guitar and look out over Eyjafjörður. I was playing Græni hatturinn that evening and wanted to use the time. And there it was: *the sun is out and it's charging me up.*
>
> Me playing in the evenings, the family exploring at night. A wonderful summer. Brilliant.
## Kredit
- [[Fólk/Mugison|Mugison]]: Lag, texti, söngur, gítar
- [[Ómar Guðjónsson]]: Gítar
- [[Valdimar Olgeirsson]]: Bassi
%% Hljóðfæri Ómars og Valdimars skv. Mugison 11. okt 2026 („þar spila bara Ómar og Valdimar"). Nánari kredit (upptaka, mix) vantar. %%