![[myndir/Niceland framhlið.jpg]] # Niceland (2004) *Tónlist úr kvikmyndinni Niceland eftir Friðrik Þór Friðriksson. **Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/61QZzjl4YJNqSWVnBAvmSr) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/6821937519) ## Um plötuna / About the album > [!note]- Pistill um plötuna > Friðrik Þór leikstjóri hringdi. Ég spurði hvert ég ætti að sigla skútunni, hvort hann væri með einhverja punkta: „Kampavín," sagði hann og skellti á. > > Fimm vikur, heil bíómynd. Sóknarnefndin lánaði mér Súðavíkurkirkju og ég sat þar við pumpuorgelið með Jesú á krossinum fyrir ofan mig. Hann gaf mér sæmilegan frið til að vinna. Fólkið í þorpinu hélt að ég væri að vekja upp drauga. > > Horfði 828 sinnum á myndina án tónlistar. Krotaði handrit. Glamraði á gítar við hverja senu. Eyddi dögum í eina hugmynd, hellti upp á kaffi, hringdi í afa, kom til baka – og heyrði að eyrun höfðu logið að mér. Tæma ruslið. Byrja upp á nýtt. > > Rúna kom næstum daglega, spilaði á orgelið, blés í blokkflautu og ýlfraði í opnunarlaginu. Lilja mamma hennar skildi eftir ólæst hjá sér svo ég gæti tekið upp píanó dag og nótt. Hver einasta píanónóta á plötunni er úr stofunni hennar. > > Keyrði í gegnum 15 snjóflóð í Súðavíkurhlíðinni. Flugvélin rétt lenti í hvítablindu. Þannig er að gera bíómynd á Íslandi. > > Bónuslögin aftast eru hugmyndir sem pössuðu ekki í myndina. Þær urðu til, svo þær fá að hoppa í eyrun á þér. > > Ógleymanlegt ferðalag. Hér fyrir neðan er lengri texti sem ég skrifaði aftan á plötukoverið þegar það kom út – letrið var svo lítið að enginn gat lesið það, sem betur fer. Ég læt það fylgja með núna, upp á húmorinn. > [!note]- About the album in English > Friðrik Þór, the director, called. I asked which way I should steer the ship, whether he had any notes: "Champagne," he said, and hung up. > > Five weeks, a whole film. The parish council lent me the church in Súðavík and I sat there at the pump organ with Jesus on the cross above me. He gave me a reasonable amount of peace to work. People in the village thought I was raising ghosts. > > Watched the film 828 times without music. Scribbled a script. Noodled on guitar to every scene. Spent days on an idea, made coffee, called my grandfather, came back – and heard that my ears had been lying to me. Empty trash. Start again. > > Rúna came almost every day, played the organ, played recorder and howled on the opening track. Her mother Lilja unlocked her door so I could record piano day and night. Every piano note on the record is from her living room. > > Drove through 15 avalanches on the Súðavík hillside. The plane barely landed in a whiteout. That's making a film in Iceland. > > The bonus tracks at the end are ideas that didn't fit the film. They came into being, so they get to hop into your ears. ---- ## Kredit Flest lög eftir [[Fólk/Mugison|Mugison]] og hann spilaði líka helling. **Blessuð sorgin** er eftir [[Rúna Esradóttir|Rúnu Esradóttur]] og Mugison. - [[Rúna Esradóttir]]: Söngur í 2 Birds og Love Theme · píanó, casio og orgel í I'd Ask Theme, Blessuð sorgin, Gráturnar, Scrap Yard og I'd Ask Finale - [[Pétur Ben]]: Spilaði og söng í Poke a Pal og I'd Ask Finale - [[Birgir Jón Birgisson]]: Kóma og dattíða í I'd Ask Finale - [[Önundur Pálsson]] (Önni): Trommur í I'd Ask Finale - Mandy Parnell: Mastering, Exchange Studios - 2 brids og I´d Ask komu aftur á Mugimama, is this monkeymusic! ----- ## Lögin / Songs | # | Lag | | --- | ----------------------------------- | | 1 | 2 Birds | | 2 | Move On | | 3 | Love Theme | | 4 | I'm on Fire, take 2 | | 5 | Later… with Jools Holland, out-take | | 6 | To the Bank | | 7 | I'd Ask, acoustic version, out-take | | 8 | I'd Ask Theme | | 9 | Still – Song for Hippies | | 10 | Mugigospel | | 11 | Patrick Swayze | | 12 | Move on Man, out-take | | 13 | I'd Ask Jolly | | 14 | Poke a Pal, take 2 | | 15 | SonKing | | 16 | Blessuð sorgin | | 17 | Gráturnar | | 18 | Scrap Yard | | 19 | I'd Ask Finale | | 20 | 47 sec Symphony | | 21 | Gráturnar + Voice | | – | One for Jesus *(aukalag)* | ----- ![[myndir/Niceland bakhlið.jpg]] *Á upprunalega diskinum var lag nr. 10, „Yfirskin" eftir Kippa Kanínus. Það er ekki lengur með af réttindarástæðum en mæli heilshugar með að fólk tékki á meistara Kippaling [á streymi](https://open.spotify.com/artist/5TTL6eCWahgc3gcnrshJG3)* > [!note]- Þakkir > Rúna, pabbi og Dóra, mamma og Pálmi, Helga og Erla, Súðavík, Súðavíkurkirkja, 12 Tónar – kíkið á strákana, nýmalað kaffi. Friðrik Þór, Huldar Breiðfjörð, Kristín M, Zik Zak – Þórir, Skúli, Ármann og Hlín gaman að vinna með ykkur, Biggi, Pétur, Kippi Kanínus, Accidental Records, John and Raf, Matthew and Dani, Max and Mira, Ísafjörður, Ásta og Reynar, Tom Waits, Nalli og Skúli, Þórður, Eiríkur „nafni minn" Norðdahl, Ísafjarðarhöfn – Dóri, Dikki, Jónas (takk fyrir allt meikið), Teddi og Guðrún, Bragi Magg í stálsmiðjunni, Kjarri og María, Ragnar og Ásdís, Trabantið allt, Rúnar Óli, Kristinn Hermanns, Greipur og Binna, Diddi og fjölskyldan á Melhaganum, Addi og Sigríður, Hudson Wayne og Kíra Kíra, Tónlistarskólinn á Ísafirði. ![[myndir/Niceland innra.jpg]] ## Textinn úr umslaginu / The liner notes > [!note]- Textinn úr umslaginu (íslenska) > *Allur textinn innan úr umbúðunum, 2004.* > > Kom mér fyrir inni í Súðavík í Álftafirði. Hringdi í Huldar og spurði hverju þeir væru að sækjast eftir. „Slakaðu bara á, gerðu eitthvað mugilegt, hafðu gaman, sökktu þér í þetta." Svo hringdi ég í Frikka og spurði: „Skipstjóri, hvert á ég að sigla skútunni, hljóðbylgjurnar skella hart á seglin úr suðri, það veit á gott tónaflóð um helgina, eigum við kannski að dorga nokkur örlög og sjá svo til." Hann sagði: hættu þessu væli. Það kom fát á mig eftir að hafa gírað upp í flugið og týpuna… Ekki enn búinn að rausa alla ræðuna mína um að maður sé sjóari, sjó-bisness, túra, æla, brú, veiðilög, lögsaga – lögsuga, spil… Frikki lemur mann niður með töffaraskap og ég spyr hvort hann vilji ekki eitthvað spes, ekkert sem þú leggur til? „Kampavín," svo skellti hann á. > > Keyrði Rúnu í vinnuna á morgnana og fór svo beint inn í kirkju. Kom mér þannig fyrir að ég horfði yfir pumpuorgelið, yfir altarið og á Jesús hangandi á krossi. Okkur kom vel saman. Hann gaf mér sæmilegan vinnufrið og ég hugsa oft til hans eins og vinnufélaga úr frystihúsinu í gamla daga, þeir sögðu ekki mikið en manni þótti samt drullu vænt um þá. Takk. Bogga kom þegar ég var að gera Patrick Swayze. Eftir það hélt fólk inni á Súðavík að ég væri að tilbiðja einhver myrk öfl inni í kirkjunni, oft skotið á okkur Rúnu „jæja, búinn að vekja einhverja drauga upp í dag" eða „hvernig gengur að særa?". > > Mér var boðið að koma niður í Bíóhljóð og sjá grófklippta útgáfu af myndinni. Mér fannst myndin æðisleg, þarna var kona frá dönsku peningunum ásamt framleiðendunum sem spurðu okkur fullt af spurningum um myndina – atriðið sem ég hélt mest var tekið út. > > Framleiðendurnir báðu mig um að velja nokkrar senur og prufa að gera músík. Það skal tekið fram að það var búið að henda inn alls konar músík á grófklipptu útgáfuna sem ég sá, músík héðan og þaðan, í þessari útgáfu voru nokkur stef úr Lonely Mountain. Ég valdi Strætó-max-þemað, þar var nefnilega stef af Lonely Mountain, I'm on Fire píanóstefið – nema hvað ég ætlaði að toppa það og sanna mig rosalega, fór vestur á Ísafjörð og gerði lag nr. 20, 47 sec Symphony. Sendi þetta suður, beið spenntur eftir að þeir hringdu vestur og segðu mér að ég væri snillingur, ég væri með þessu búinn að taka Morricone í rassgatið, John Brion væri bara vælukjói sem myndi aldrei ná þessari færni, þessu drama, spennu. Ég endaði náttúrulega á því að hringja suður og spyrja hvort þeir væru búnir að fá pakkann og hvort þetta væri ekki örugglega snilld. > > Ég heyrði strax á Totta framleiðanda að hann var ekki hrifinn. „Þetta er eitthvað svo alvarlegt, eins og heil sinfónía á 1 mínútu, veit ekki maður haaa." Hringdi svo beint í Huldar og hann sagði „er ekki allt í lagi?" > > Ég hélt þá að þetta þýddi „nei takk, held að einhver annar fái þetta bara", en nokkrum vikum seinna bjölluðu þeir í kallinn og réðu hann í vinnu. > > Korteri eftir að ég vissi að ég myndi fá að massa þessa mynd var eins og Woody Allen, Eddie Murphy, Davíð Oddsson, Páll Óskar og Einar Örn Sykurmoli væru allir búnir að andsetja mig. Ég svitnaði allur, röflaði og röflaði í henni Rúnu „hvernig á ég að geta unnið við þessar aðstæður", „á ég virkilega að vera gera þetta, 5 vikur heil mynd, held ég hringi suður og segi þeim að gleyma þessu, langar í myndlist". Rúna bleytti handklæði og sló mig utanundir, sagði mér að halda kjafti og fara vinna, hún væri búin að tala við sóknarnefndina inni í Súðavík og ég fengi að vera í kirkjunni á meðan ég kláraði þetta. Vestfirskar konur eru bestar. > > Annars var myndin tilbúin þegar ég kem inn í pakkann, ég fékk 5 vikur til þess að massa þetta. Ég horfði 828 sinnum á hana án tónlistar svo krotaði ég niður handrit að tónlistinni. Svo tók ég hverja senu fyrir, hélt á gítar og gutlaði eitthvað, eða sat við gamla pumpuorgelið, sat og spilaði með senunum. Oft kom eitthvað glatað rugl en manni fannst það vera snilld, vann oft í einhverri hugmynd í marga klukkutíma, stundum daga, svo fór maður kannski og hellti upp á kaffi, hringdi kannski í afa minn og kom svo aftur að verkinu og hlustaði og heyrði að eyrun höfðu verið að ljúga að manni, þau höfðu bara verið full af rembingi og minnimáttarkennd og tók fólderinn með tilheyrandi lagi og setti í Trash og smellti svo á empty trash. Fáviti. > > Ég hringdi oft í Huldar (skrifaði handritið) og spjallaði við hann um myndina og almennt um daginn og veginn. Ég verð voðalega innhverfur við svona aðstæður og það getur verið gott að spjalla við Huldar og nokkra vini mína sem vita alveg hverjir þeir eru. Skál. > > Eins og venjulega þegar við Íslendingar vinnum að bíómynd þá eru alltaf einhverjar vættir og galdrar sem koma við sögu. Ég veit ekki betur en ég hafi keyrt af mér 15 snjóflóð á Súðavíkurhlíðinni, flugvélin rétt náði að lenda í blindbyl, gulu miðarnir stukku sjálfir í ruslið til þess að íþyngja manni ekki… og svo lengi mætti telja. > > Rúna Esradóttir á alveg helling í öllu sándtrakkinu með mér. Hún kom nær daglega og sagði hug sinn, spilaði orgelið, flautaði í blokkarann og gólaði í upphafslaginu. Það er alltaf gaman að hanga með sætri stelpu en þegar maður hittir svona snilling getur maður ekki annað en reynt við hana og byrjað með henni, reynt að barna hana og grátbiðja hana um að giftast sér – þetta er allt að koma. > > Mamma hennar, hún Lilja, tók hurðina úr lás og sagði mér að ég mætti koma dag og nótt til þess að taka upp píanó, og ég tók hana á orðinu. Allar píanónótur sem þið heyrið eru spilaðar og teknar upp heima hjá henni, iðulega fékk maður kaffi og mat, spjall og faðmlög frá henni Lilju, fyrir þessa ómetanlegu hjálp er ég þér ævinlega innilega þakklátur elskan mín. Sorry hvað ég skildi draslið lengi eftir í píanóinu en þú getur kennt honum John Cage um það, hann byrjaði. > > Þú getur sofið þegar þú ert dauður sagði Bjarni við mig þegar við vorum á skaki rétt undan Hótel Grænuhlíð. Bjarni er svartsýnn maður, sagði mér sögur af óupplýstum morðum, pervertum, aumingjaskap og nauðgunum, snjöllum fyllibyttum og var einkar klár við að útskýra háttalag þjóðarinnar, hennar sterkustu og veikustu hliðar. Tvær megin íslenskar manngerðir; þær sem framkvæma og þær sem tala. Ég hef flakkað á milli þeirra beggja, stundum er ég algjör gerari, alvöru talari og enginn gerari, alvöru maður, fæ stundum dauðlangar að vera alvöru gerari, samviskubit þegar ég leigi spólu. > > Ég fékk Næsland upp í hendurnar. Ég veit að ég á mörgum að þakka. Að tónskópuninni undanskilinni þá var það svo cool að fá að kynnast öllum þessum gerurum og sérstaklega manninum sem segir fæst orð á Íslandi, Friðrik Þór, hversu kúl er að segja gutta eins og mér „kampavín", meiri töffara finnur maður ekki. Gaurinn bjó til íslenska kvikmyndasögu. Gerari dauðans. Snilli. > > Pabbi minn eða papamug eins og hann er kallaður dags daglega hérna fyrir vestan, er búinn að reynast mér svo innilega vel síðustu ár, án hans væri ég ekki að gera músík eða koma fram. Koss. > > Á þessum disk eru aukalög, s.s. lag I'd Ask acoustic. Ég fékk DVD-inn hans Michel Gondry um daginn og var alveg heillaður, hann opnar diskinn sinn með því að segja að hann myndi velja magn frekar en gæði. Ég varð eitthvað svo hrikalega sammála honum að ég hoppaði á harða diskinn minn og fann nokkur atriði sem ég hafði ekki eitt á meðan ég var að gera lögin við myndina, mixaði þau aðeins og henti þeim með. Þótt að þessi lög hafi ekki passað inn í myndina fannst mér þau samt eiga heima á þessum disk, þau urðu til og fá því að hoppa inn í eyrun á ykkur. > > Kippi Kanínus er nýr vinur, ferskur vindur fyrir mig, ég vil þakka honum með koss og bjór, þú ert snillingur. Allir út í búð að kaupa Kippa. ![[myndir/Niceland - 2004 - 1.jpg]] *Matarpása heima hjá Rúnu 🥂* ![[myndir/Niceland - eldhúsið hjá Rúnu.jpg]] *Mynd úr eldhúsinu hennar Rúnu á þessum tíma :-)* ![[myndir/Niceland - Rúna.jpg]] *Rúna sæta ❤️*