![[myndir/Little Trip umslag.jpg]]
# Little Trip (2005)
*Tónlist úr kvikmyndinni A Little Trip to Heaven.*
**Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/0zyAw0EhkkVzmdpnRPFdmh) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/6821135870)
## Um plötuna / About the album
> [!note]- Pistill um plötuna
> Ég man fyrst eftir Baltasar Kormáki baksviðs á útgáfutónleikum Mugimama á Nasa. Þar var afi og amma, mamma, systurnar Erla og Hlega, Rúna, Pétur, Biggi – mitt nánasta fólk – og svo kemur Balti baksvið að spjalla og spyr hvernig ég tæki í að gera músík fyrir bíómynd. Upp frá því byrjaði samtalið, og fljótlega var ég bara farinn að vinna.
>
> Ég samdi þetta að mestu í litlu íbúðinni okkar á Grundargötunni, veturinn 2004–2005. Um sumarið kíkti ég á Balta norður á Hofsós. Þar sat Elísabet Ronaldsdóttir, klipparinn, í gömlu húsi í bænum, nýflutt þangað með börnin til að klippa myndina – hrikalega heimilislegt. Mér fannst eitthvað svo yndislega sveitó og fallegt að vinna alþjóðlega stórmynd úr gömlu húsi á Hofsósi. Seinna varð hún ein af frægustu klippurum heims.
>
> Tók svo allt upp í Sundlauginni hjá Bigga. [[Kjartan Hákonarson|Kjartan Hákonar]] á trompet og Sammi á básúnu voru dúett, spiluðu í mjög mörgum lögum. [[Björgvin Gíslason|Bjöggi Gísla]] á gítar. Og [[Pétur Grétarsson]] á slagverk í nærri öllum lögum – hann kom með heilan heim af perkdóti sem mér fannst hrikalega spennandi og er mikið notað í myndinni. Opinn, til í tilraunir, alltaf skemmtilegur. Sjálfur gutlaði ég á gítar, hljómborð og í tölvunni og reyndi að gera gagn.
>
> Eitt trikk er eftirminnilegt. Ég var búinn að afskræma röddina mína og bjagaða gítartóna í tölvunni, og við Biggi keyrðum það út um hátalara undir píanóið með sustain-pedalann niðri. Það bjargaði þessu alveg – allt í einu hljómaði þetta eins og alvöru hljóðfæri í alvöru rými. Kjartan Kjartansson hljóðsetti svo myndina með Ingvari Lundberg sér við hlið – við Kjartan höfðum áður unnið saman í Niceland, alltaf gaman að hitta hann aftur.
>
> Myndin á að gerast í einhvers konar Ameríku og ég var innblásinn þaðan – Fat Possum-blúsinn og gamli ameríski blúsinn. Þegar ég hlusta í dag heyri ég líka Massive Attack og Tom Waits. Hrikalega skemmtilegt að vinna þetta með Balta.
> [!note]- About the album in English
> My first memory of Baltasar Kormákur is backstage at the Mugimama release show at Nasa. My grandparents were there, my mum, my sisters, Rúna, Pétur, Biggi – my closest people – and then Balti turns up with some crowd and asks how I'd feel about scoring a film. That started the conversation, and soon I was simply working.
>
> I wrote most of it in our little flat on Grundargata, the winter of 2004–2005. In the summer I drove north to see Balti in Hofsós. Elísabet Ronaldsdóttir, the editor, was there too, newly moved into an old house in the village with her kids to cut the film – wonderfully homely. Something so lovely and small-town about making an international feature out of an old house in Hofsós. She later became one of the most famous editors in the world.
>
> Then I recorded everything at Sundlaugin with Biggi. [[Kjartan Hákonarson|Kjartan Hákonar]] on trumpet and Sammi on trombone were a duo, on a lot of the tracks. [[Björgvin Gíslason|Bjöggi Gísla]] on guitar. And [[Pétur Grétarsson]] on percussion on nearly everything – he brought a whole world of percussion toys that I found thrilling, and they're all over the film. Open, up for experiments, always fun. I noodled on guitar, keys and the computer and tried to be useful.
>
> One trick stays with me. I'd mangled my voice and some distorted guitar tones in the computer, and Biggi and I played it back through speakers under the piano with the sustain pedal down. It saved the whole thing – suddenly it sounded like a real instrument in a real room. Kjartan Kjartansson did the sound design for the film, with Ingvar Lundberg at his side – Kjartan and I had worked together on Niceland, always good to see him again.
>
> The film is set in some kind of America and that's where I drew from – the Fat Possum blues and the old American blues. Listening today I also hear Massive Attack and Tom Waits. A joy to make this with Balti.
----
## Kredit
- [[Fólk/Mugison|Mugison]]: Allt nema annað sé tekið fram
- **Go Blind:** lag og texti [[Fólk/Mugison|Mugison]] · bandútgáfa á [[2009 Ítrekun|Ítrekun]] (2009)
- **Little Trip to Heaven:** lag og texti Tom Waits. Mugison syngur og spilar
- [[Rúna Esradóttir]]: Gravestone (í myndinni)
**Hljóðfæraleikarar / Who played what:**
- [[Pétur Grétarsson]]: Slagverk, í nærri öllum lögum
- [[Pétur Ben]] gítar í nokkrum lögum
- [[Kjartan Hákonarson]]: Trompet, í mörgum lögum
- Samúel Jón Samúelsson (Sammi): Básúna, í mörgum lögum
- [[Björgvin Gíslason]]: Gítar í Little Trip To Heaven
%% ath (á eftir að gera ýtarlegri lista fyrir hvert lag, finn ekki gögnin) %%
**Upptökur:** Sundlaugin, [[Birgir Jón Birgisson]]
-----
## Lögin / Songs
| # | Lag | Gestir |
|---|---|---|
| 1 | Pétur Grétarsson | |
| 2 | Go Blind | |
| 3 | Little Trip to Heaven | |
| 4 | Watchdog | |
| 5 | Mugicone | |
| 6 | Piano for Tombstoner | |
| 7 | Clip 10 | |
| 8 | Alone in a Hotel | |
| 9 | Rush | |
| 10 | Pétur Þór Ben | |
| 11 | Watchcat | |
| 12 | My Nobel Prize | |
| 13 | Alone in the Office | |
| 14 | Mugicone, Part 2 | |
| 15 | Stiff | |
| 16 | Sammi & Kjartan | |
| 17 | Bonus Track | |