![[myndir/Mýrin umslag.jpg]] # Mýrin (2006) Október 2006. *Tónlist úr kvikmyndinni Mýrin. Mug 005.* **Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/4MJgFOz8VgR7Ts2YV02P9K) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/6821938807) ## Um plötuna / About the album > [!note]- Pistill um plötuna > Fljótlega eftir Little Trip fór Balti á fullt í Mýrina, eftir metsölubók Arnaldar. Við sátum og töluðum um Erlend: þögull íslenskur klettur, lopapeysa, skyrta innan undir, losaralegt bindi, skegg og þykk vetrarkápa. Maður sem hefur lifað og séð meira en aðrir. Hvað er íslenskara en lopapeysan? Við komumst að því að í músík væri það karlakór. > > Hugmyndin varð þessi: músíkin má ekki taka athygli frá áhorfandanum, hún á að dýpka hana. Þess vegna völdum við lög sem eru í DNA-inu á öllum Íslendingum – Til eru fræ, Sveitin milli sanda, Bíum bíum bambaló, Á Sprengisandi, Fyrir átta árum, Áfram veginn. Ekki hefðbundnar útgáfur, oftast bara úúú og aaah, kórinn að vísa í melódíurnar. Þær segja sögu inn í undirmeðvitundina án þess að fólk fatti það. Það er nóg að það skynji. > > Við Rúna fluttum aftur vestur um vorið. [[Kristján Guðjónsson]] kom með og útsetti með okkur, Rúna kasólétt af yngri stráknum, og við að malla þetta á daginn. Ég kláraði uppi í skálanum á skíðasvæðinu og í Hnífsdal. Svo fórum við Biggi hingað og þangað að taka upp kórana og í rauninni leikstýra þeim: [[Fóstbræður]] með [[Árni Harðarson|Árna Harðarsyni]] – kaffispjall heima hjá þeim hjónum til að undirbúa sessionin, og svo karlarnir æðislegir – [[Hljómeyki]], [[Kammerkór Ísafjarðar]], [[Lögreglukórinn]]. Ég að reyna að miðla tilfinningu, þeir að framkvæma hana. > > Sá sem á stærstan hlut fyrir utan kórana er [[Hrólfur Vagnsson]] frá Bolungarvík. Nýkominn heim eftir langa dvöl í Þýskalandi sem vinsæll upptökumaður og pródúsent, búinn að koma sér fyrir í Bolungarvík og vinna þaðan fyrir sinfóníu úti í Asíu – Peking eða Bangkok, ég man það ekki, en mér fannst það geggjað. Einn af þeim sem eru hlaðnir hæfileikum. Við hittumst uppi á fjalli á Ísafirði, hann spann á harmonikkuna eftir samtal og gerði það listavel. > > Besta útsetningarhugmyndin kom frá Kristjáni: að splæsa saman Til eru fræ og Sofðu unga ástin mín. Í lok plötunnar – Svefnfræ, Fræsvefn – syngur kórinn annað lagið og harmonikkan hitt, og þau renna saman eins og þau hafi alltaf átt að vera svona. Í Svefnfræ, söngur (lag nr 24 á plötunni), syngur kórinn bæði. Þetta var áhrifaríkt í myndinni: tvö lög í einni sæng. Poetískt, glæsilega gert hjá Fóstbræðrum. > > Svo var ein sena sem ég var í vandræðum með: þeir grafa, finna lík undir gólffjölum, ógeðsleg lykt. Ég skrifaði niður: *hvernig opnar maður gátt til helvítis?* Svarið var kór af dauðarokksöngvurum. [[Daði Jónsson]] – tengdur mér fjölskylduböndum, náttúrugarpur, brimbrettamaður og fjallaleiðsögumaður – setti saman [[Púkakórinn]] úr uppáhaldssöngvurunum sínum í senunni, sem var þá ein sú mest spennandi á landinu. Tíu strákar plús ég, eina kvöldstund í Sundlauginni, að rymja og öskra í laginu Elliði. Fluga á vegg hefði haldið sig komna þúsund ár aftur í tímann – menn að blóta á laun. > > Myndin sló í gegn, annar hver maður á landinu fór. Og ég er sáttur við lendinguna okkar Balta: músík sem tekur enga orku af fólki en talar beint við undirmeðvitundina. > [!note]- About the album in English > Soon after Little Trip, Balti dived into Mýrin (Jar City), from Arnaldur Indriðason's bestseller. We sat and talked about Erlendur the detective: a silent Icelandic rock, lopapeysa sweater, shirt underneath, loose tie, beard, heavy winter coat. A man who has lived and seen more than most. What's more Icelandic than the lopapeysa? We decided that in music it would be a male choir. > > So the idea was this: the music must never pull attention from the viewer, only deepen it. We chose songs that are in every Icelander's DNA – Til eru fræ, Sveitin milli sanda, Bíum bíum bambaló, Á Sprengisandi, Fyrir átta árum, Áfram veginn. Not the usual versions, mostly just oooh and aaah, the choir hinting at the melodies. They tell a story straight into the subconscious without anyone quite noticing. Sensing it is enough. > > Rúna and I moved back west that spring. [[Kristján Guðjónsson]] came along and arranged with us, Rúna heavily pregnant with our younger boy, the two of us cooking this up during the day. I finished it up in the lodge at the ski area and in Hnífsdalur. Then Biggi and I went here and there recording the choirs and basically directing them: [[Fóstbræður]] with [[Árni Harðarson]] – coffee at his and his wife's place to plan the sessions, and then the men, wonderful – [[Hljómeyki]], [[Kammerkór Ísafjarðar]], [[Lögreglukórinn]]. Me trying to convey a feeling, them delivering it. > > Apart from the choirs, the biggest part belongs to [[Hrólfur Vagnsson]] from Bolungarvík. Just home after years in Germany as a sought-after engineer and producer, settled in Bolungarvík and working from there for a symphony orchestra somewhere in Asia – Beijing or Bangkok, I can't remember, but I thought it was brilliant. One of those musicians loaded with talent. We met up on the mountain in Ísafjörður, he improvised on the accordion after a conversation, and did it beautifully. > > The best arrangement idea came from Kristján: splicing Til eru fræ with Sofðu unga ástin mín. At the end of the record – Svefnfræ, Fræsvefn – the choir sings one song and the accordion the other, and they melt together as if they were always meant to be this way. In Svefnfræ, söngur (track 24), the choir sings both. It was powerful in the film: two songs in one bed. Poetic, gloriously done by Fóstbræður. > > Then there was one scene I was stuck on: they dig, find a body under the floorboards, a horrible smell. I wrote down: *how do you open a gate to hell?* The answer was a choir of death-metal singers. [[Daði Jónsson]] – family of sorts, outdoorsman, surfer, mountain guide – put together [[Púkakórinn]], the Devil's Choir, from his favourite singers in the scene, which was one of the most exciting in the country at the time. Ten lads plus me, one evening at Sundlaugin, growling and roaring on the track Elliði. A fly on the wall would have thought it was a thousand years earlier – men at a secret heathen rite. > > The film was a hit, every other person in the country went. And I'm happy with where Balti and I landed: music that takes no energy from people but speaks straight to the subconscious. ---- ## Kredit **Lög eftir:** - [[Fólk/Mugison|Mugison]] (Erlendur, Elliði, Myrra, Óður til Hildigunnar) - [[Rúna Esradóttir]] (Heyr, ó Guð raust mína, Lyrik). Annað þjóðlög og eldri lög – sjá lagakredit neðar á síðunni **Raddsetningar og útsetningar:** [[Kristján Guðjónsson]], [[Hrólfur Vagnsson]], [[Rúna Esradóttir]], [[Marteinn H. Friðriksson]] **Tónlistarfólk:** [[Pétur Grétarsson]] – slagverk [[Hrólfur Vagnsson]] – harmonikka **Kórar:** [[Fóstbræður]] ([[Árni Harðarson]]) · [[Hljómeyki]] ([[Magnús Ragnarsson]]) · [[Púkakórinn]] ([[Daði Jónsson]]) · [[Kammerkór Ísafjarðar]] ([[Guðrún Jónsdóttir]]) · [[Lögreglukórinn]] · [[Swingdingkór]] > [!note]- Kórarnir / The choirs > **[[Fóstbræður]]** – [[Árni Harðarson]], stjórnandi > Arnlaugur Helgason, Ágúst Guðmundsson, Björn Jónsson, Elís Reynarsson, Finnbogi H. Alexandersson, Friðrik Snorrason, Guðjón Snæbjörnsson, Guðmundur Jón Stefánsson, Jón Viðar Arnórsson, Jón Steinar Jónsson, Lárus Loftsson, Reynir Þormar Þórisson, Sverrir Jónsson, Þorleifur Pálsson, Þorsteinn Guðnason, Þórður Ásm. Júlíusson, Þráinn Sigurðsson, Arinbjörn Vilhjálmsson, Birgir Þór Borgþórsson, Guðmundur Örn Ragnarsson, Guðni Eiríksson, Gunnar Ólafsson, Hallmundur Marvinsson, Hannes Snorrason, Hans Júlíus Þórðarson, Jón Þ. Stefánsson, Stefán Már Sturluson, Tryggvi T. Tryggvason, Valdimar Örnólfsson, Viðar Þorsteinsson, Þorvaldur B. Hauksson, Agnar Ástráðsson, Björn Jónatan Emilsson, Einar Jón Briem, Einar Mantyla, Elías Sv. Sveinbjörnsson, Guðgeir Einarsson, Guðmundur Jóhannsson, Gunnar Ólafsson, Haraldur Baldursson, Hjörtur Ágúst Magnússon, Jón Þorsteinn Gunnarsson, Júlíus Karl Einarsson, Magnús Ólafsson, Óskar Smári Haraldsson, Páll Ásgeir Ásgeirsson, Ragnar Marteinsson, Skúli Mölle, Snorri Baldursson, Arnór Þórir Sigfússon, Ásbjörn Jóhannesson, Einar H. Ágústsson, Garðar Eggertsson, Grétar Samúelsson, Gunnar Reynarsson, Gunnlaugur V. Snævarr, Hróbjartur Óskarsson, Jón Rúnar Kristjónsson, Júlíus B. Kristinsson, Kjartan Ingvason, Kolbeinn Gunnarsson, Magnús Snæbjörnsson, Marteinn Jóhannesson, Oddgeir Eysteinsson, Ólafur Héðinn Friðjónsson, Pétur Oddbergur Heimisson, Sigurður Þ. Jakobsson, Sigurður Kristinsson, Sigurjón Helgason, Smári Sigurðsson, Stefán Árni Einarsson, Stefán Már Halldórsson, Sturla Erlendsson, Þorvaldur Friðriksson > > **[[Hljómeyki]]** – [[Magnús Ragnarsson]], stjórnandi > Elín Arna Aspelund, Elín Gunnlaugsdóttir, Heiðrún Hákonardóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Rakel Edda Guðmundsdóttir, Þórdís Sævarsdóttir, Brynhildur Auðbjargardóttir, Lilja Dögg Gunnarsdóttir, Ragnheiður Lárusdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir, Þóra Marteinsdóttir, Jóhann Baldvinsson, [[Óttar Sæmundsen]], Pétur Björnsson, Skúli Hakim Mechiat, Finnbogi Óskarsson, Gunnar Guðnason, Halldór Vilhelmsson, Þorsteinn Þorsteinsson > > **[[Swingdingkór]]** > Guðmundur M. Kristjánsson, Páll Loftsson, Birgir Olgeirsson, Hjörleifur Hjartarsson > > **[[Púkakórinn]]** – [[Daði Jónsson]], stjórnandi > Birkir Fjalar Viðarsson, Daði Jónsson, Andri Akason, Ásgeir Sigurðsson, Valdimar Jóhannsson, Egill Geirsson, Hörður Ólafsson, Hafsteinn Viðar Ársælsson, Ragnar Már Nikulásson > > **[[Kammerkór Ísafjarðar]]** – [[Guðrún Jónsdóttir]], stjórnandi > Torfi Einarsson, Páll Loftsson, Árni Traustason, Dóri í Hnífsdal – Halldór Ásgeirsson, Freygerður Ólafsdóttir, Dagbjört Hjaltadóttir, Dagný Hermannsdóttir, Ragnheiður Halldórsdóttir, Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir, Jón Hallfreð Engilberts, Þorsteinn Haukur Þorsteinsson, Kristín Lilja Kjartansdóttir, Wendy Scott, Svanhildur Garðarsdóttir, Óli Lúðvíksson, Björn í Botni, Fanný M. Bjarnardóttir, Hjördís Þráinsdóttir, Marta Örnólfsdóttir, Soffía Bragadóttir, Bjarni Jóhannsson, Þórunn Snorradóttir, Hulda Bragadóttir > > **[[Lögreglukórinn]]** – *(félagar ekki taldir upp í bæklingi)* **Upptökur fóru fram í:** - Salnum Kópavogi, - Langholtskirkju, - Hömrum – tónlistarskólanum á Ísafirði, - Gönguskíðaskálanum á Ísafirði, - Sundlauginni. **Mixað í:** Gönguskíðaskálanum á Ísafirði, Fitjateigi Hnífsdal. **Tekið upp, mixað og almennt massað af:** [[Fólk/Mugison|Mugison]] og [[Birgir Jón Birgisson]]. **Hönnun:** [[Alli Metall]] > [!note]- Þakkir > Rúna Esradóttir, Dýri og Eldar, Papamug og Halldóra Magnúsdóttir, Kristín Arnardóttir, Erla Sonja og Helga Guðmundsdóttir, Pétur, Grunnskólinn á Súðavík, Súðavíkurkirkja, Einar Már Sigurðarson og Helga Magnea Steinsson, Kristín Lilja Kjartans og Haukur Þorsteinsson, Ásta Ýr Esra og Daði Jónsson, Gréta, Birta og Bergdís, Gönguskíðafélagið á Ísafirði, Höfnin á Ísafirði, Finnbogi, Láki, Palli Janus og Arnór á flugvellinum á Ísafirði, Tónlistarskólinn á Ísafirði, Kristinn og Dóra, Skari í Kaupfélaginu á Súðavík, Vigdís Esradóttir og Einar Unnsteinsson, Langholtskirkja og Helga, Maggi Hauks og Dikki, Salurinn í Kópavogi, Kristján og Joanne og Iðunn Gígja, Sundlaugin og Sigur Rós, Stefán B. Önundarson, Dagur Bærings, Eiríkur Norðdahl, Dr. Spokk. ----- ## Lögin / Songs | # | Lag | |---|---| | 1 | Til eru fræ | | 2 | Sveitin milli sanda | | 3 | Bíum bíum bambaló | | 4 | Erlendur | | 5 | Elliði | | 6 | Á Sprengisandi | | 7 | Fyrir átta árum | | 8 | Áfram veginn | | 9 | Áfram veginn | | 10 | Halabalúbbúlúbbúlei | | 11 | Malakoff | | 12 | Bí bí og blaka I | | 13 | Myrra | | 14 | Kirkjuhvoll | | 15 | Bí bí og blaka II | | 16 | Dagný | | 17 | Heyr, ó Guð raust mína | | 18 | Lyrik | | 19 | Nú hnígur sól | | 20 | Sofðu unga ástin mín | | 21 | Óður til Hildigunnar | | 22 | Svefnfræ | | 23 | Fræsvefn | | 24 | Svefnfræ, söngur | | 25 | Nú legg ég augun aftur | > [!note]- Lagakredit / Song credits > **1 · Til eru fræ** > - Lag / texti: Erlent lag. Radds. [[Kristján Guðjónsson]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **2 · Sveitin milli sanda** > - Lag / texti: Magnús Blöndal Jóhannsson. Úts. [[Hrólfur Vagnsson]] > - Flutningur: [[Hrólfur Vagnsson]] > > **3 · Bíum bíum bambaló** > - Lag / texti: Írskt þjóðlag. Radds. [[Rúna Esradóttir]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **4 · Erlendur** > - Lag / texti: [[Fólk/Mugison|Mugison]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **5 · Elliði** > - Lag / texti: [[Fólk/Mugison|Mugison]] / [[Eiríkur Örn Norðdahl]] > - Flutningur: [[Púkakórinn]] > > **6 · Á Sprengisandi** > - Lag / texti: Árni Thorsteinsson / Grímur Thomsen. Radds. [[Kristján Guðjónsson]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **7 · Fyrir átta árum** > - Lag / texti: Einar Markan / Tómas Guðmundsson. Úts. [[Hrólfur Vagnsson]] > - Flutningur: [[Hrólfur Vagnsson]] > > **8 · Áfram veginn** > - Lag / texti: Rússneskt þjóðlag / Freysteinn Gunnarsson > - Flutningur: [[Hrólfur Vagnsson]] > > **9 · Áfram veginn** > - Lag / texti: Rússneskt þjóðlag / Freysteinn Gunnarsson > - Flutningur: [[Lögreglukórinn]], einsöngur: [[Óskar Pétursson]] > > **10 · Halabalúbbúlúbbúlei** > - Lag / texti: Erlent þjóðlag / Jónas Árnason. Radds. [[Kristján Guðjónsson]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **11 · Malakoff** > - Lag / texti: Íslenskt þjóðlag / Björn M. Olsen. Radds. [[Kristján Guðjónsson]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **12 · Bí bí og blaka I** > - Lag / texti: Þjóðlag > - Flutningur: [[Hrólfur Vagnsson]] og [[Fólk/Mugison|Mugison]] > > **13 · Myrra** > - Lag / texti: [[Fólk/Mugison|Mugison]] > - Flutningur: [[Hrólfur Vagnsson]] > > **14 · Kirkjuhvoll** > - Lag / texti: Bjarni Þorsteinsson / Guðmundur Guðmundsson > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **15 · Bí bí og blaka II** > - Lag / texti: Þjóðlag > - Flutningur: [[Hrólfur Vagnsson]] > > **16 · Dagný** > - Lag / texti: Sigfús Halldórsson. Úts. [[Hrólfur Vagnsson]] > - Flutningur: [[Hrólfur Vagnsson]] > > **17 · Heyr, ó Guð raust mína** > - Lag / texti: [[Rúna Esradóttir]] / Davíðssálmur 64 > - Flutningur: [[Hljómeyki]] > > **18 · Lyrik** > - Lag / texti: [[Rúna Esradóttir]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **19 · Nú hnígur sól** > - Lag / texti: Dmitri Bortniansky / Axel Guðmundsson > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **20 · Sofðu unga ástin mín** > - Lag / texti: Íslenskt þjóðlag / Jóhann Sigurjónsson. Radds. [[Marteinn H. Friðriksson]] og [[Rúna Esradóttir]] > - Flutningur: [[Lögreglukórinn]], einsöngur: [[Snorri Hjálmarsson]] > > **21 · Óður til Hildigunnar** > - Lag / texti: [[Fólk/Mugison|Mugison]] > - Flutningur: [[Hljómeyki]], ásláttur: [[Pétur Grétarsson]] > > **22 · Svefnfræ** > - Lag / texti: Erlent lag og ísl. þjóðlag. Úts. [[Kristján Guðjónsson]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] og [[Hrólfur Vagnsson]] > > **23 · Fræsvefn** > - Lag / texti: Erlent lag og ísl. þjóðlag. Úts. [[Kristján Guðjónsson]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] og [[Hrólfur Vagnsson]] > > **24 · Svefnfræ, söngur** > - Lag / texti: Erlent lag og ísl. þjóðlag. Úts. [[Kristján Guðjónsson]] > - Flutningur: [[Fóstbræður]] > > **25 · Nú legg ég augun aftur** > - Lag / texti: Peter Thun Foersom / Sveinbjörn Egilsson > - Flutningur: [[Kammerkór Ísafjarðar]]