![[myndir/Gullregn umslag.jpg]]
# Gullregn (2020)
*Tónlist úr kvikmyndinni Gullregn eftir Ragnar Bragason.*
**Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/2obMEGuV3JxCLgOJBNVzrw) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/6821168401) · [Hlaðvarp / Podcast](https://open.spotify.com/episode/6KO1yQaeAqB5LTY6eUHCKl)
## Um plötuna / About the album
> [!note]- Pistill um plötuna
> Árið 2013 setti [[Ragnar Bragason]] upp leikritið Gullregn í Borgarleikhúsinu að frumkvæði Magnúsar Geirs Borgarleikhússtjóra. Hann fékk mig til að gera tónlistina við leikritið og í kjölfarið vann ég næstu tvö leikrit með honum líka – saman mynda þau tríólógíu.
>
> Í stuttu máli fjallar Gullregn um Indíönu Jónsdóttur sem býr á neðstu hæð í blokk í Breiðholtinu, son hennar Unnar og pólsku kærustu hans Daníelu, Jóhönnu (vinkonu Indíönu) og móður Indíönu, hana Gerði. Gullregn er gamandrama, við þekkjum flest þetta fólk á einhvern hátt, geggjuð mynd.
>
> Við Raggi pældum mikið í hvaða hljóðfæri gæti rímað vel við karakterana:
>
> **Indíana** er harpa – seiðandi, dul og viðkvæm.
>
> **Gerður** (mamma Indíönu) er celesta – að mörgu leyti skyld hörpunni en barnalegri, stundum grallaraleg, stundum ógnandi.
>
> **Daníela** (pólska kærastan) er píanó – ábyrgðarfullt og einlægt.
>
> **Jóhanna** er preparað píanó – skrúfur og drasl liggja ofan á strengjunum. Jóhanna er nagli og skrúfa, er einhvern veginn að liðast í sundur en samt full af ást og brjálað úthald.
>
> **Unnar** er málmblástur – lúðrasveit, brallari á fleygiferð.
>
> Ég kann því miður ekkert nótur og svoleiðis þannig að ég samdi og spilaði allt inn í tölvuna á [Linnstrument](http://www.rogerlinndesign.com/linnstrument.html). Ég byrjaði að semja sumarið 2019 þegar ég var að túra um landið, þá daga sem ég var ekki að spila var ég yfirleitt að þróa grunnhugmyndirnar, hljóma og melódíur. Ég er svo heppinn að eiga sendibíl sem er hálfgerður campervan og gat unnið í honum þótt ég væri á tónleikaferðalagi. Geggjaður lúxus.
>
> Svo þegar ég kom loksins heim til Súðavíkur um haustið fór ég að útsetja þetta í tölvunni og máta almennilega við myndina. Okkur Ragga langaði að tónlistin væri að einhverju leyti gamaldags og „lush“ sem myndi ríma við og styrkja þennan heim sem Indíana er búin að búa sér til … eða lifir í … og auðvitað er best að gera það með heilli sinfóníuhljómsveit.
>
> Við vorum svo heppnir að fá styrk til að taka upp í pólska útvarpinu með [[Sinfonia Viva]]. En svo að það væri hægt fengum við meistara [[Úlfur Eldjárn|Úlf Eldjárn]] til að útsetja fyrir hljómsveitina það sem ég var búinn að krota í tölvuna. Ég held mikið upp á Úlf, hann er í einni bestu hljómsveit í heimi – [Apparat Organ Quartet](https://open.spotify.com/artist/3i5gr85i1BX2ntzmdRWW7W) – og svo hefur hann gert heilan hellings af geggjuðum verkefnum sem hægt er að skoða [á heimasíðunni hans](https://www.ulfureldjarn.com) eða hoppa á [Spotify og hlusta](https://open.spotify.com/artist/46LH9HoKkHC1lSFJ1fU78o). Algjör meistari og þvílík gæfa að fá hann inn í verkefnið.
>
> Við vorum í heila viku í pólska útvarpinu að taka upp með Sinfonia Viva og nokkrum vinum þeirra. Ég hef aldrei upplifað neitt í líkingu við þetta, að vinna með svona stórum og fjölbreyttum hóp, hæfileikaríkum tónlistarmönnum, stjórnendum, listrænum stjórnanda, hljóðmeistara og hljóðmönnum. Svakalega mikið af flottu fólki. Lúxus de lux.
>
> Ég hef lengi snobbað fyrir Pólverjum og Póllandi og þess vegna algjör unaður að vera áfram í Varsjá eftir að upptökum lauk, í auka tíu daga. Ég fékk frábæra stúdíóíbúð við Poznańska sem er nokkuð miðsvæðis með geggjaða veitingastaði út um allt. Ég mixaði á daginn, svo kom Raggi í heimsókn á kvöldin og hlustaði, gaf mér punkta og svo fórum við út að borða á hverju einasta kvöldi. Súper dúper gott stöff. Vá!!!
>
> Ég er svakalega ánægður með tónlistina og samstarfið við Ragga og alla sem komu að Gullregni. Endalaust takk takk takk fyrir kærlega :-)
>
> **Hlaðvarp:** Skype-samtal okkar Ragga um myndina og tónlistina – við förum um víðan völl, hlustum á alla tónlistina, förum yfir undirbúning, upptökur, pælingar ofan á pælingar. [Hlusta á Spotify](https://open.spotify.com/episode/6KO1yQaeAqB5LTY6eUHCKl).
>
> **Myndir** frá upptökunum í Varsjá eru í [[Fréttir/2020-01-05 Gullregn|fréttinni frá 5. janúar 2020]].
> [!note]- About the album in English
> In 2013 [[Ragnar Bragason]] staged the play Gullregn at Reykjavík City Theatre. He asked me to write the music, and after that I did his next two plays as well – together they make a trilogy.
>
> In short, Gullregn is about Indíana Jónsdóttir, who lives on the ground floor of a block of flats in Breiðholt, her son Unnar and his Polish girlfriend Daníela, her friend Jóhanna, and her mother Gerður. It's a comedy-drama – most of us know these people somehow. Brilliant film.
>
> Raggi and I spent a lot of time thinking about which instrument could rhyme with each character:
>
> **Indíana** is the harp – seductive, secretive, fragile.
>
> **Gerður** (Indíana's mum) is the celesta – related to the harp in many ways, but more childish, sometimes mischievous, sometimes menacing.
>
> **Daníela** (the Polish girlfriend) is the piano – responsible and sincere.
>
> **Jóhanna** is prepared piano – screws and junk lying on the strings. Jóhanna is a nail and a screw, somehow falling apart but still full of love and mad stamina.
>
> **Unnar** is brass – a marching band, a troublemaker at full speed.
>
> I can't read music at all, so I wrote and played everything into the computer on a [Linnstrument](http://www.rogerlinndesign.com/linnstrument.html). I started writing in the summer of 2019 while touring Iceland – on the days I wasn't playing I'd usually be working on the basic ideas, chords and melodies. I'm lucky enough to own a van that's half a camper, so I could work in it while on tour. Total luxury.
>
> When I finally got home to Súðavík in the autumn I started arranging it properly in the computer and fitting it to the film. Raggi and I wanted the music to be somewhat old-fashioned and lush, to rhyme with and strengthen the world Indíana has built for herself … or lives in … and of course the best way to do that is with a full symphony orchestra.
>
> We were lucky to get a grant to record at Polish Radio with [[Sinfonia Viva]]. To make that possible we got the master [[Úlfur Eldjárn]] to arrange what I had scribbled into the computer for the orchestra. I think the world of Úlfur – he's in one of the best bands on earth, [Apparat Organ Quartet](https://open.spotify.com/artist/3i5gr85i1BX2ntzmdRWW7W), and has done a ton of brilliant projects you can find [on his website](https://www.ulfureldjarn.com) or [on Spotify](https://open.spotify.com/artist/46LH9HoKkHC1lSFJ1fU78o). A true master, and such a gift to have him on board.
>
> We spent a whole week at Polish Radio recording with Sinfonia Viva and a few of their friends. I'd never experienced anything like it – working with such a big and varied group: brilliant musicians, conductors, an artistic director, a recording director and engineers. So many great people. Luxury de luxe.
>
> I've long been a snob for Poland and the Poles, so it was pure bliss to stay on in Warsaw for ten extra days after the sessions. I had a great studio flat on Poznańska, fairly central, with amazing restaurants everywhere. I mixed during the day, Raggi came by in the evenings to listen and give notes, and then we went out to eat every single night. Super duper good stuff. Wow!!!
>
> I'm really happy with the music and with working with Raggi and everyone involved in Gullregn. Endless thanks :-)
>
> **Podcast:** a Skype conversation between Raggi and me about the film and the music (in Icelandic) – we go all over the place, listen to all the music, go through the preparation, the recordings, ideas on top of ideas. [Listen on Spotify](https://open.spotify.com/episode/6KO1yQaeAqB5LTY6eUHCKl).
>
> **Photos** from the sessions in Warsaw are in the [[Fréttir/2020-01-05 Gullregn|news post from 5 January 2020]].
----
## Kredit
*Öll lög: [[Fólk/Mugison|Mugison]]*
- [[Úlfur Eldjárn]]: Útsetning
- [[Sinfonia Viva]]: Flytjandi
- [[Ragnar Bragason]]: Pródúser
- [[Birgir Jón Birgisson]]: Mix og Mastering
**Upptökur:** Varsjá, nóvember 2019.
-----
## Lögin / Songs
| # | Lag |
| --- | ----------------------------- |
| 1 | Upphafstitlar / Indíana |
| 2 | Árstíðir |
| 3 | Unnar |
| 4 | Shady Business |
| 5 | Jóhanna |
| 6 | Álfurinn í bollanum / Daníela |
| 7 | Hjalti Pétur |
| 8 | Björgunarafrek |
| 9 | Indíana |
| 10 | Afleiðingar |
| 11 | Daniela |
| 12 | Gerður mætir |
| 13 | Indíana plantar tré |
*Lög 1 og 6 eru líka á [[É Dúdda Mía (album)|É Dúdda Mía]] (2023).*
**Hlaðvarp / Podcast:**
- [Skype-samtal okkar Ragga um myndina og tónlistina – á Spotify](https://open.spotify.com/episode/6KO1yQaeAqB5LTY6eUHCKl) *(á íslensku)*
## Myndir frá upptökunum / Photos from the sessions
*Pólska útvarpið, Varsjá, nóvember 2019 / Polish Radio Studio, Warsaw, November 2019.*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 1.jpg]]
*Tadeusz, upptökustjóri, og konan hans · Tomasz Radziwonowicz, stjórnandi Sinfonia Viva · [[Úlfur Eldjárn]], útsetjari / Tadeusz, recording director, and his wife · Tomasz Radziwonowicz, director of Sinfonia Viva · Úlfur Eldjárn, arranger*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 3.jpg]]
*[[Ragnar Bragason]], leikstjóri · Sebastian, ábyrgur fyrir hljómsveitinni · Agnieszka Puciło, pródúsent (a.k.a. Agagas!) / Ragnar Bragason, director · Sebastian, in charge of the orchestra · Agnieszka Puciło, producer*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 5.jpg]]
*Úlfur Eldjárn, útsetjarinn magnaði / Úlfur Eldjárn, the amazing arranger*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 7.jpg]]
*[[Sinfonia Viva]]*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 9.jpg]]
*Sinfonia Viva og Radosław, hljómsveitarstjóri / Sinfonia Viva and Radosław, the conductor*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 11.jpg]]
*Mugison*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 13.jpg]]
*Mugison og Tomasz Radziwonowicz / Mugison and Tomasz Radziwonowicz*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 15.jpg]]
*Gengið! Radosław, Ragnar, Úlfur, Sebastian, Tomasz, Mugison / The gang!*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 17.jpg]]
*Hluti af Sinfonia Viva / Part of Sinfonia Viva*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 19.jpg]]
*Slagverkið tekið upp / Percussion session*
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 21.jpg]]
![[myndir/2020-01-05 Gullregn 34.jpg]]
*Unnið í bílinum - working in the car!