![[myndir/Felix og Klara - umslag 3 (án texta).jpg]] # Felix & Klara (2025) Október 2025. *Tónlist úr sjónvarpsþáttunum Felix & Klara eftir [[Ragnar Bragason]]. Átján lög, öll instrumental, 39 mínútur.* **Hlusta / listen:** [Spotify](https://open.spotify.com/album/1VbR5U0KSTS40s7LwCcbep) · [Apple Music](https://music.apple.com/us/album/felix-klara-original-soundtrack/6822347615) > [!note]- Pistill um plötuna > [[Ragnar Bragason|Raggi]] er frá Súðavík. Hann var barnapían hennar Rúnu, á hús við bryggjuna og fjölskyldurnar okkar hafa verið vinir síðan við fluttum vestur – matarboð og kaffispjall á sumrin. Það var í einu svona kaffispjalli, mörgum árum áður en nokkur vissi að þetta yrðu sjónvarpsþættir, að hann lék alla seríuna fyrir mig. Felix og Klara, týpur sem eru allt í kringum okkur – þeir Jón Gnarr eru svo naskir á að finna vinkilinn. Ég var í hláturskasti. Einkaleikhús í Súðavík. > > Raggi er draumaleikstjóri. Að leikstýra er að stjórna strengjabrúðu með milljón strengjum – handrit, sett, tökudagar, fólk – og á leiðinni flækjast þeir allir. Hann heldur samt sýninni skýrri og gefur ramma sem er æði að skapa inn í. Við sitjum á kaffifundum, hlæjum okkur máttlausa og teiknum kort: hér keyrir karakterinn í 15 sekúndur, þá þarf að rifja upp stef úr þætti á undan, og það á að ná í undirmeðvitundina hjá bæði honum og þeim sem horfir. Músík er undirmeðvitund í myndefni. Að búa hana til með Ragga er æði. > > Þegar grænt ljós kom frá RÚV var ég lagður af stað í að spila í hundrað kirkjum í hundrað póstnúmerum. Átta mánuðir í sendiferðabílnum, vorið 2024 og út árið. Spila á Hvammstanga, fara í rigningunni út í bíl, leggja honum einhvers staðar, elda smá mat, taka upp Linnstrumentið og tölvuna, horfa á myndina og semja. Þannig urðu flestir grunnarnir til. Um haustið var ég kominn með stúdíó í 70 fermetra húsi í Mosó – kirkja þrjá til fimm daga í viku, hina dagana að klára og taka upp. Ógeðslega skemmtilegur tími, góður fókus. > > Eins og alltaf með Ragga fékk hver karakter sitt hljóðfæri. **Felix** er kontrabassi – klunnalegur, oft bara á fjórðapartsnótum, þunglamalegur og smá fyndinn. **Klara** er píanó, viðkvæmt píanó. Svo lék ég mér endalaust með Linnstrumentið: Rhodes-sánd sem hljómar ekki eins og Rhodes og ekki eins og pedal steel, dettur úr pitchi í pitch – andlega lífið hans Felixar, eins og við séum inni í hausnum á honum. > > [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristófer]] og [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] eru burðarstykkið, þeir líma þetta allt saman. [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] á saxófón nær bæði grallaraskapnum og alvarlegri undirtóni. [[Haukur Gröndal|Haukur]] á klarínett – í fyrsta sinn sem við vinnum saman – er leiðandi stef; klarínettan er mennsk, eins og mannsröddin, og tjáningin hjá honum snilld. Og Cauda stelpurnar [[Sigrún Harðardóttir|Sigrún]], [[Þóra Margrét Sveinsdóttir|Þóra]] og [[Þórdís Gerður Jónsdóttir|Þórdís]] með strengina. Ég föndraði í kringum þetta allt og glamraði á það sem vantaði upp á. > > Ég kláraði um áramótin 2024. Sýningu var frestað – skiptir engu, deadline er til að klára. Svo gengu þættirnir svakalega vel. Fólk ræddi Felix í heitu pottunum; margir sjá Felix í sínum nánustu og Klöru líka, eins og ég sé þau bæði í mér. Og svo vann ég Edduna fyrir tónlist ársins í sjónvarpi – óvænt ánægja, fyrsta skiptið mitt á Eddunni. Gaman að þessi músík sé komin út. > [!note]- About the album in English > [[Ragnar Bragason|Raggi]] is from Súðavík. He used to babysit Rúna, he has a house down by the harbour, and our families have been friends since we moved west – dinners and coffee chats in the summers. It was over one of those coffees, years before anyone knew this would be a TV series, that he acted out the whole thing for me. Felix and Klara, people you find all around you – he and Jón Gnarr have such a nose for the angle on a character. I was in fits. Private theatre in Súðavík. > > Raggi is a dream director. Directing is operating a puppet with a million strings – script, sets, shooting days, people – and along the way every string gets tangled. He keeps the vision clear anyway, and gives you a frame that's a joy to create inside. We sit at coffee meetings, laugh ourselves weak and draw a map: here the character drives for 15 seconds, here we need to recall a theme from an earlier episode, and it has to reach the subconscious of both the character and the viewer. Music is the subconscious of film. Making it with Raggi is a gift. > > When RÚV gave the green light, I had just set off to play a hundred churches in a hundred postcodes. Eight months in the van, spring 2024 through the end of the year. Play Hvammstangi, walk out into the rain, park the van somewhere, cook a little, get out the Linnstrument and the laptop, watch the picture and write. That's where most of the sketches came from. By autumn I had a studio in a 70-square-metre house in Mosfellsbær – a church three to five days a week, the other days finishing and recording. A ridiculously good time, sharp focus. > > As always with Raggi, every character got an instrument. **Felix** is a double bass – clumsy, often just on quarter notes, heavy-footed and a bit funny. **Klara** is a piano, a fragile piano. Then I played endlessly with the Linnstrument: a Rhodes sound that doesn't sound like a Rhodes and not like a pedal steel either, dropping in and out of pitch – Felix's inner life, as if we're inside his head. > > [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristófer]] and [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] are the backbone, they glue it all together. [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] on sax catches both the mischief and the heavier undertone. [[Haukur Gröndal|Haukur]] on clarinet – our first time working together – carries the lead themes; the clarinet is human, like a voice, and his phrasing is brilliant. And the cheerful girls [[Sigrún Harðardóttir|Sigrún]], [[Þóra Margrét Sveinsdóttir|Þóra]] and [[Þórdís Gerður Jónsdóttir|Þórdís]] on strings. I tinkered around all of it and played whatever was missing. > > I finished at New Year 2024. The broadcast was postponed – doesn't matter, a deadline is for finishing. Then the series took off. People talked about Felix in the hot tubs; many see Felix in someone close to them, and Klara too, just as I see both of them in me. And then I won the Edda for TV music of the year – an unexpected pleasure, my first time at the Eddas. Glad this music is out now. ## Um þættina / About the series - **Tíu þættir** á RÚV, sunnudagar 5. okt – 7. des 2025. Hálftími hver - **Felix** er fyrrum tollari sem flyst með **Klöru**, konu sinni, á dvalarheimili. Hann á mjög erfitt með að aðlagast þessum breytingum - en Klara fagnar breytingunum. - Leikstjórn [[Ragnar Bragason]] - **Jón Gnarr** og **Edda Björgvinsdóttir** í aðalhlutverkum. - Handrit Ragnar og Jón Gnarr, - **Framleiðsla:** Davíð Óskar Ólafsson / Mystery Productions (Ísland) og Lunanime (Belgía) ---- ## Kredit **Lög:** Mugison **Upptökur og mix:** - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · - [[Birgir Jón Birgisson]] · aðstoð við strengjaupptökur: **Mastering:** [[Birgir Jón Birgisson]] **Hljóðfæraleikarar / Who played what:** - [[Kristofer Rodríguez Svönuson]]: Trommur og slagverk - [[Birgir Steinn Theodórsson]]: Kontrabassi - [[Óskar Guðjónsson]]: Saxófónn, klarinett - [[Haukur Gröndal]]: Klarinett - [[Sigrún Harðardóttir]]: Fiðla - [[Þóra Margrét Sveinsdóttir]]: Víóla - [[Þórdís Gerður Jónsdóttir]]: Selló - [[Fólk/Mugison|Mugison]]: Píanó, synth, Linnstrument, orgel, Rhodes, gítar **Umslag:** úr plakati þáttanna ----- ## Lögin / Songs | # | Lag | |---|---| | 1 | Einn í allan dag | | 2 | Yfirgefur heimilið | | 3 | Auglýst eftir spilum | | 4 | Mín fagra angist | | 5 | Klara | | 6 | Rannsakar bíl | | 7 | Felix einmanna | | 8 | Felix talar við dóttur sína | | 9 | Einhverfa og einstefna | | 10 | Viagra | | 11 | Felix spæjari | | 12 | Andvaka | | 13 | Sápufjall | | 14 | Þvottavélablús | | 15 | Upphafsstef | | 16 | Kann ekki að elda | | 17 | Nærbuxur | | 18 | Elsku Klara | > [!note]- Lagakredit / Song credits > **1 · Einn í allan dag** > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Trommur og slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Haukur Gröndal|Haukur]] · Klarinett > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó, synth, Linnstrument > > **2 · Yfirgefur heimilið** > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] · Saxófónn > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó, synth > > **3 · Auglýst eftir spilum** > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Orgel, synth, píanó > > **4 · Mín fagra angist** > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Slagverk > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Linnstrument, Rhodes, synth > > **5 · Klara** > - [[Haukur Gröndal|Haukur]] · Klarinett > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Linnstrument, píanó, synth > > **6 · Rannsakar bíl** > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Haukur Gröndal|Haukur]] · Klarinett > - [[Sigrún Harðardóttir|Sigrún]] · Fiðla > - [[Þóra Margrét Sveinsdóttir|Þóra Margrét]] · Víóla > - [[Þórdís Gerður Jónsdóttir|Þórdís Gerður]] · Selló > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó, synth > > **7 · Felix einmanna** > - [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] · Saxófónn > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Sigrún Harðardóttir|Sigrún]] · Fiðla > - [[Þóra Margrét Sveinsdóttir|Þóra Margrét]] · Víóla > - [[Þórdís Gerður Jónsdóttir|Þórdís Gerður]] · Selló > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó > > **8 · Felix talar við dóttur sína** > - [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] · Saxófónn > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Slagverk > - [[Haukur Gröndal|Haukur]] · Klarinett > - [[Sigrún Harðardóttir|Sigrún]] · Fiðla > - [[Þóra Margrét Sveinsdóttir|Þóra Margrét]] · Víóla > - [[Þórdís Gerður Jónsdóttir|Þórdís Gerður]] · Selló > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Synth, Linnstrument, píanó > > **9 · Einhverfa og einstefna** > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Trommur og slagverk > - [[Sigrún Harðardóttir|Sigrún]] · Fiðla > - [[Þóra Margrét Sveinsdóttir|Þóra Margrét]] · Víóla > - [[Þórdís Gerður Jónsdóttir|Þórdís Gerður]] · Selló > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Synth, píanó, Linnstrument > > **10 · Viagra** > - [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] · Saxófónn > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Trommur og slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Orgel, synth, Linnstrument, píanó > > **11 · Felix spæjari** > - [[Haukur Gröndal|Haukur]] · Klarinett > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Trommur og slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Sigrún Harðardóttir|Sigrún]] · Fiðla > - [[Þóra Margrét Sveinsdóttir|Þóra Margrét]] · Víóla > - [[Þórdís Gerður Jónsdóttir|Þórdís Gerður]] · Selló > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Linnstrument, Rhodes, synth > > **12 · Andvaka** > - [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] · Saxófónn > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Slagverk > - [[Sigrún Harðardóttir|Sigrún]] · Fiðla > - [[Þóra Margrét Sveinsdóttir|Þóra Margrét]] · Víóla > - [[Þórdís Gerður Jónsdóttir|Þórdís Gerður]] · Selló > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó, synth > > **13 · Sápufjall** > - [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] · Saxófónn > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Trommur og slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Orgel, synth > > **14 · Þvottavélablús** > - [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] · Saxófónn > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó > > **15 · Upphafsstef** > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Trommur og slagverk > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Haukur Gröndal|Haukur]] · Klarinett > - [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] · Saxófónn og klarinett > - [[Sigrún Harðardóttir|Sigrún]] · Fiðla > - [[Þóra Margrét Sveinsdóttir|Þóra Margrét]] · Víóla > - [[Þórdís Gerður Jónsdóttir|Þórdís Gerður]] · Selló > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó, synth, Linnstrument > > **16 · Kann ekki að elda** > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Trommur og slagverk > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó, synth, gítar > > **17 · Nærbuxur** > - [[Óskar Guðjónsson|Óskar]] · Saxófónn > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Slagverk > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó, synth > > **18 · Elsku Klara** > - [[Haukur Gröndal|Haukur]] · Klarinett > - [[Birgir Steinn Theodórsson|Birgir Steinn]] · Kontrabassi > - [[Kristofer Rodríguez Svönuson|Kristofer]] · Trommur og slagverk > - [[Fólk/Mugison|Mugison]] · Píanó, synth --- %% Heimild: Skjalameistarinn/01 Verkefni/1 Músík/Útgáfa/Soundtrack Endurútgáfa/Felix og Klara.md (12. okt 2026) – þar eru líka TuneCore-, Dropbox- og STEF-nótur sem EIGA EKKI heima hér. Kredit úr lokakreditlista þáttar 1 + skráning Mugison. %%