# Upplýsingar – spurt og svarað ## jéss sörr ![[upplysingar 1.jpg]] ### Upplýsingar - Spurt og Svarað: **Spurt:** Spilarðu í Brúðkaupum og hvað kostar. - **M:** já mér finnst æðislegt að spila í brúðkaupum. Verðskalinn hjá mer er 150-300þ og fer eftir klukkan hvað, hvar og hvenær. **Spurt:** Hvernig er best að hafa samband við þig til þess að fá þig til að koma og spila? og hvað kostar svoleiðis? - **M:** það er langbest að senda mér póst á **[email protected]**, ég er mjög lélegur á facebook en skoða gmail reglulega. Verðið er svoldið rokkandi eftir árstíðum, dögum vikuna, klukkan hvað og svo hvernig græjumálum er háttað.. en gróflega: - fyrir innkomu - yfirleitt 4 lög - ég einn - 200-400þ. - fyrir lengra sprell t.d. 25-30 mín - ég einn - 400-600þ - fyrir heila tónleika þarf að hafa samband. - Tónleikar með Hljómsveit er á bilinu 1.5m - 2m **Spurt:** Spilarðu í Jarðarförum - **M:** Já ég er nýbyrjaður á því. Þar er verðskalinn 130-150þ **Spurt: **Græjumál - getur þú reddað því? - **M: **já get reddað hljóðkerfi og hljóðmanni.. gott að hafa smá fyrirvara á því.